Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Kjartan Kjartansson skrifar 9. febrúar 2026 15:13 Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB, (t.h.) segir evrópskt stolt skýra hvers vegna áhorfendur í Mílanó bauluðu á J.D. Vance, varaforseta Bandaríkjanna, (f.m.) á opnunarhátíð vetrarólympíuleikanna. Vísir Áhorfendur sem bauluðu á varaforseta Bandaríkjanna á opnunarhátíð vetrarólympíuleikanna í Mílanó í síðustu viku gerðu það til að sýna „evrópskt stolt“, að mati utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Ástæðan sé ítrekaðar skammir Vance í garð Evrópu að undanförnu.
Baulað var á J.D. Vance, varaforseta Bandaríkjanna, þegar honum og Ushu eiginkonu hans brá fyrir á risaskjá á San Siro-vellinum þegar vetrarólympíuleikarnir voru settir í síðustu viku. Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB, var spurð út í uppákomuna. Hún sagði að Bandaríkjastjórn hefði sagt ýmislegt óvinsamlegt um Evrópu. „Almenningur okkar er auðvitað líka stoltur, evrópskt stolt. Þannig að það sést,“ sagði Kallas við Euronews í dag. Samskipti Evrópu og Bandaríkjanna hafa farið stirðnandi frá því að Donald Trump tók aftur við völdum vestanhafs í fyrra. Ekki síst hefur ásælni Trump í Grænland og hótanir um að hann gæti mögulega beitt valdi til þess að sölsa það undir sig vakið ugg í Evrópu. Vance hefur verið hvað harðorðastur Bandaríkjamannanna í garð Evrópu. Þannig hefur bandarískir varaforsetinn sakað evrópsk stjórnvöld um að reyna að bæla niður tjáningarfrelsið vegna tilrauna þeirra til þess að takmarka hatorðsorðræðu og upplýsingafals á samfélagsmiðlum. Hann hefur einnig sagt innflytjendastefnu Evrópuríkja stefna vestrænni siðmenningu í voða. Hvoru tveggja endurspeglast í þjóðaröryggisáætlun sem stjórn Trump kynnti í vetur.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Bandaríkin Evrópusambandið Ítalía Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira