Tillaga að lausn á húsnæðismarkaði Marinó G. Njálsson skrifar 6. febrúar 2026 09:03 Þrátt fyrir að mikið sé byggt, þá er viðvarandi vandi á húsnæðismarkaði. Þetta ástand er ekkert nýtt, en þrátt fyrir það virðast engar alvöru lausnir vera á borðinu. Ég hef skrifað um þessi mál og mörg önnur tengd hagsmunum heimilanna og almennings lengi og hef því kynnt þessa tillögu mína áður, án þess að nokkur hafi sett sig í samband við mig til að spyrja mig nánar út í málin. Ég vil nota deiliskipulagið til að leysa málin. Deiluskipulag á að vera verkfæri sveitarfélaga til að ákvarða hvaða uppbyggingu þau vilja innan marka sinna. Ég fylgdist með þessu í Danmörku, þegar ég bjó þar, og þar var línan mjög skýr. Verktakar fengu lóðir til að byggja á í samræmi við skilgreint deiliskipulag byggingareita og urðu að halda sig við það skipulag. Lítið sem ekkert svigrúm hefur verið gefið, að ég best veit. Eitt af því sem eru skilyrði um, er að eigi að byggja á tilteknum reit fjölbýli með mörgum stigagöngum eða í mörgum byggingum, þá VARÐ ákveðinn hluti að vera til eiginbúsetu eiganda, ákveðinn hluti VARÐ að vera til útleigu og síðan var einhver hluti sem gat verið annað af tvennu. Hér á landi er missa sveitarfélögin völdin um leið og einhver verktaki hefur fengið reit úthlutað. Verktakinn fær nánast frjálsar hendur um byggingarmagn, enda virðist sveitarstjórnarfólk eiga ákaflega erfitt með að standa í fæturna. Engar kvaðir eru um skiptingu íbúða í eignaríbúðir fyrir þann sem ætlar að búa í íbúðinni, leiguíbúðir, orlofsíbúðir, hótelíbúðir, AirBnB, o.s.frv. Þess vegna geta fjársterkir aðilar sölsað allar íbúðir undir sig og skilið ungt fólk vill eignast sitt fyrsta húsnæði úti á köldum klaka. Væru settar skorður með deiliskipulagi (augljóslega hægt, þar sem Reykjavíkurborg notaði það til takmarka fjölda veitingastaða innan póstnúmers 101), gæti Akureyrarbær t.d. takmarkað ásókn verkalýðsfélaga í íbúðir í bænum til að leigja félagsmönnum sínum. Verkalýðsfélögin yrðu einfaldlega að óska eftir byggingarreit til að byggja slíkar orlofsíbúðir. Á sama hátt kæmi það í veg fyrir að fjársterkir aðilar gætu yfirboðið ungt fólk og keypt upp heilu stigagangana til að setja í útleigu. Það er ekkert að því, að leigufélög/húsnæðisfélög kaupi upp heilu stigagangana. Nauðsynlegt er að haga hlutunum þannig, að það komi ekki í veg fyrir að til séu íbúðir á viðráðanlegu verði fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref. Ekki þarf að fletta lengi í gegn um fasteignaauglýsingar til að sjá, að mjög lítið úrval er af íbúðum í ákveðnum stærðarflokki, þ.e. undir 100 fm. Þær hafa einfaldlega verið gleyptar af fjársterkum aðilum sem ætla að leigja þær út. (Ástandið er svo sem ekki alveg dæmigert núna vegna takmarkana Seðlabankans, en það tekur enda.) Sé sett ákvæði í deiliskipulag, að 60% íbúða í hverju stærðarflokki skuli selja til eiginbúsetu eða er það 70%, a.m.k. miðað við skiptingu milli leigumarkaðar og eignamarkaðar, þá er 70% ekki fjarri lagi. Vissulega mun heyrast hljóð úr horni, en sveitarfélögin hafa deiliskipulagsvaldið og þau geta ekki varpað ábyrgðinni á byggingaraðila. Fái aðili úthlutað byggingarreit, þá veit hann einfaldlega áður en hönnun hefst að þetta eru skilmálarnir. Svo dæmi sé tekið, 70% íbúða á byggingarreitnum skal selja til einstaklinga sem ætla að búa í þeim. Það hefur þær afleiðingar fyrir kaupandann, að hann getur ekki eftir nokkur ár ákveðið að setja íbúðina á langtímaleigu, nema íbúð, sem var leiguíbúð, hafi verið seld til eigin búsetu. Sveitarfélögin ættu síðan að geta sett reglur um að á þegar byggðum reitum með annað hvort mikið af leiguhúsnæði eða mikið af eignarhúsnæði, þá verði reynt að búa til nýja skiptingu. Þetta er hægt að gera með hvötum, milligöngu sveitarfélaganna eða einfaldlega eins og Reykjavíkurborg gerði, að ekki er hægt að breyta íbúð í leiguíbúð séu leiguíbúðir of margar á svæðinu og öfugt. Nú vil ég skora á vin minn, Ragnar Þór Ingólfsson, ráðherra húsnæðismála, að tryggja lagabreytingar svo þetta sé hægt, ef slíkra lagabreytinga er þörf. Ég vil líka skora á sveitarfélögin til að hrinda þessum breytingum í framkvæmd. Þau eiga að stjórna uppbyggingu innan sinna marka, ekki byggingaraðilar. Höfundur er ráðgjafi og áhugamaður um betra samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Marinó G. Njálsson Mest lesið Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason Skoðun Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson Skoðun Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Skoðun Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson skrifar Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Reykjavík - Menningarborg á heimsmælikvarða Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Á kjördag er líka kosið um frelsi fatlaðs fólks Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Óraunhæft endurkaupaverð ógnar framtíð Grindavíkur Telma Sif Reynisdóttir skrifar Skoðun Vaxtarmörk Samfylkingarinnar Orri Björnsson skrifar Skoðun Tölurnar tala sínu máli Guðmundur Claxton skrifar Skoðun Var orðalag spurningarinnar mótað í Brussel? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Um menningarstefnur og borgarpólitík Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Á bak við heimilisleysi eru einstaklingar með sögu Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Við erum lið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Bónda í Húsdýragarðinn Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar Skoðun Botnvarpan, kórallarnir og þögn Hafró Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Pissandi kýr og hörmungar – Nakba í 78 ár Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Til varnar Gísla Marteini og Borgarlínu Ingólfur Harri Hermannsson skrifar Skoðun Fæði, klæði, húsnæði Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Garðabær má ekki staðna Viðar Kristinsson skrifar Skoðun Takk Reykvíkingar – stolt af því sem við áorkuðum saman Ellen Calmon skrifar Sjá meira
Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar
Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar