„Við erum mjög hungraðir í þennan titil“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 3. febrúar 2026 20:05 Hilmar Smári Henningsson leikmaður Stjörnunnar. Vísir/Vilhelm Stjarnan tryggði sér sæti í úrslitum VÍS bikarsins í kvöld þegar þeir lögðu Keflavík af velli í framlengdum leik 107-110. Hilmar Smári Henningsson átti stóra körfu undir lok leiks sem fór langt með þetta fyrir Stjörnuna. „
Drullu harður og erfiður leikur sem að við vorum að klára spila. Maður er eiginlega bara feginn að ganga í burtu með sigur“ sagði Hilmar Smári Henningsson leikmaður Stjörnunnar eftir sigurinn í kvöld. „Þetta var svolítið bara andlegur styrkur sem þurfti til þess að klára þennan leik og mér fannst við sýna það að við erum með mjög sterkan haus sem lið“ „Á ákveðnum tímapunkti misstum við hann niður en við náðum að halda einbeitingu og halda áfram þannig ég er ógeðslega glaður með að við höfum náð að halda áfram og komist í úrslitin. Það er það eina sem maður tekur úr þessu“ Eftir frábæran leik og hörku framlengingu voru það Stjörnumenn sem reyndust sterkari. „Það er bara þessi andlegi styrkur sem að ég talaði um. Við héldum áfram í gegnum mótlætið og þetta er bara drullu erfitt og bikarinn er drullu erfiður því það er svo mikið undir. Það er mikil spenna og pressa á manni“ „Mér fannst við ekki sýna jafn góðan leik og við höfum sýnt og getum sýnt en við eigum þá bara helling inni fyrir laugardaginn“ Hilmar Smári Henningsson setti risastóran þrist fyrir Stjörnuna í framlengingunni sem lagði grunninn að sigri Stjörnunnar í kvöld. „Mér fannst ég skulda silfurskeiðinni og liðinu mínu það í lokin og sem betur fer fór hann ofan í þannig maður getur allavega gengið frá sáttur með það“ Silfurskeiðin var frábær í stúkunni í kvöld og mátti vel sjá hvað það gaf Stjörnumönnum mikið að hafa þetta bláa haf í stúkunni. „Jesús, þau voru geggjuð. Þau tóku undir um leið og þau mættu í stúkuna og það voru þvílík læti í þeim og mér fannst við eiga stúkuna í dag. Þau sýndu bara að þau eru með bakið okkar og styðja okkur í öllu sem að við gerum“ „Sama hversu illa gekk hjá okkur þá héldu þau áfram og það er bara hugarfar sem við verðum að taka áfram og taka inn á völlinn og sýna betur í næsta leik. Sýna þeim þakklæti fyrir að vera að styðja okkur svona“ Hilmar Smári hefur unnið Íslandsmeistaratitilinn með Stjörnunni og honum dauðlangar að bæta bikarmeistaratitlinum í safnið. „Við erum mjög hungraðir í þennan titil. Okkur fannst við klúðra honum í fyrra og duttum út í fjögurra liða úrslitum svo við erum mjög hungraðir og ótrúlega andlega tilbúnir í það að fá þennan líka. Við erum bara ógeðslega spenntir og núna erum við bara einu skrefi nær“
Stjarnan VÍS-bikarinn Körfubolti Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Arsenal - Man. City | Fyrsti titill tímabilsins í boði Enski boltinn Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Fleiri fréttir Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Arsenal - Man. City | Fyrsti titill tímabilsins í boði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Rodman í heiðurshöll WWE Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Friðrik Leó áfram en Birgir Leifur úr leik í Marsfárinu Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Kristín Evrópumeistari og bætti tvö heimsmet Ármann fékk skell í kveðjugjöf Tryggvi fagnaði eftir trylli í Pýreneafjöllum Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Ósáttur við sóknina í fyrri hálfleik: „Fannst við of hægir og staðir“ Hamar/Þór - Keflavík 88-85 | Keflavík fékk Hamarshögg í Þorlákshöfn „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Magnaður sigur Elísu og brautarmet á Ítalíu Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 27-30 | Gamlir draugar létu á sér kræla Sjá meira