Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Agnar Már Másson skrifar 3. febrúar 2026 17:18 Starfsmennirnir eru ekki smitandi, að sögn framkvæmdastjóra á Landspítalanum. Að minnsta kosti átta starfsmenn á bráðamóttökunni í Fossvogi í Reykjavík hafa verið útsettir fyrir berklum, en þeir eru hvorki veikir né smitandi. Þá getur vel verið að þeir hafi smitast af bakteríusýkingunni fyrir mörgum árum.
Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítala, staðfestir þetta í samtali við Vísi en mbl.is greindi fyrst frá. Hann útskýrir að starfsmennirnir hafi í raun fengið jákvætt svar í mótefnaprófi. Heldur sé engin sönnun fyrir því að starfsmennirnir hafi smitast af bakteríunni á bráðamóttökunni. Rætt var við Rafn í kvöldfréttum Sýnar. Rafn útskýrir að Landspítalinn hafi nýlega tekið upp á því að skima eftir berklum í auknum mæli. „Það eru mikil þrengsli og gera okkur stundum erfitt fyrir að vinna vinnuna okkar. En meðal annars vegna þessa þá höfum við brugðið á ýmis ráð og meðal annars er í gangi mjög öflug skimun og leit að duldum berklum, sem margir kannast nú við frá barnæsku,“ segir hann og minnist á hina svokölluðu berklaplásta sem iðulega voru notaðir til að skima fyrir berklum. En fyrir nokkrum árum hafi spítalinn tekið upp blóðpróf, sem sé miklu næmara en berklaplástrarnir, og þannig sé markvisst skimað á ýmsum deildum spítalans, þar á meðal á bráðamóttökunni, ef grunur vaknar um smit. „Það hefur ákveðinn fjöldi einstaklinga greinst með jákvætt mótefnasvar,“ segir Rafn. „En það þýðir alls ekki að þessir einstaklingar séu veikir, og þeir eru ekki með klínísk einkenni eða með smitandi berkla,“ útskýrir hann. Þetta kallist huldir berklar. Erna Milunka Kojic, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans, ræddi þá í Reykjavík síðdegis í dag. Rafn heldur áfram: „Jú, eins og kemur fram í fyrirsögnum þá eru átta manns sem hafa orðið útsettir fyrir berklum en það er engin sönnun fyrir því að það hafi orðið á bráðamóttökunni,“ bætir hann við. „Það gæti allt eins hafa orðið fyrir fimm árum eða 10 árum, þegar ekki voru svona ákveðnar skimunaraðgerðir í gangi.“ Berklar eru ekki mjög smitandi samanbornir við veirusýkingar á borð við inflúensu, mislinga eða hina alræmdu kórónuveiru. Samkvæmt Vísindavefnum er smithætta almennt meiri eftir því sem samskipti við sjúkling eru nánari. Rafn viðurkennir að oft sé afar þröngt á bráðamóttökunni. „En það er auðvitað staðreynd, eins og við höfum bent á oft áður, að bráðamóttakan er mjög oft yfirfull og það er takmarkaður fjöldi einangrunarplássa og það gerir okkur vissulega erfiðara fyrir að sinna vinnunni okkar. En fólkið á bráðamóttökunni kann að standa sig mjög vel þarna.“ Fréttin var uppfærð með viðtali við Rafn í kvöldfréttum.
Landspítalinn Heilbrigðismál Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Berklar Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira