„Þá kemur bara allt í einu högg“ Smári Jökull Jónsson skrifar 2. febrúar 2026 20:32 Eins og sjá má er Daníel Örn vel lemstraður eftir árásina. Vísir/Lýður Valberg Maður sem varð fyrir fólskulegri líkamsárás í Garðabæ á föstudagskvöld kveðst þakklátur fyrir að vera á lífi, hugrakkur vegfarandi hafi ekki hugsað sig tvisvar um áður en hann skarst í leikinn. Meintir árásarmenn eru þrír og allir undir lögaldri.
Daníel Örn Sigurðsson var að bíða eftir strætó í Garðabæ eftir að hafa horft á undanúrslitaleik Íslands og Danmerkur. Í skýlinu voru ungmenni sem einnig voru að bíða eftir strætó. Árásin átti sér stað í strætóskýli við Ásgarð á föstudagskvöld og var að sögn Daníels algjörlega tilefnislaus en hann hafði nálgast ungmennin með það í huga að sýna þeim spilagaldur. „Þá kemur annar strákurinn upp að mér ógnandi og með rosalegu offorsi. Ég segi honum að slaka á, bið hann að slaka aðeins á og ætla að fara að sýna honum spilagaldur og þá kemur bara allt í einu högg,“ segir Daníel í viðtali sem birtist í kvöldfréttum Sýnar. Man lítið eftir árásinni Við höggið féll Daníel í götuna þar sem barsmíðarnar héldu áfram. „Þá fæ ég annað högg og það er sparkað í andlitið á mér. Þá man ég eftir ég hafi velst við. Hvort ég hafi skrapast eitthvað á jörðinni, en allavega þá komu nokkur högg á eftir því. Þetta er í bitum einhvern veginn af því að ég man rosalega lítið eftir þessu.“ Anton Sveinn McKee, fyrrverandi sundmaður, átti leið hjá og kom Daníel til bjargar. Hann elti meðal annars einn af árásármönnunum uppi og hélt niðri þar til lögreglan kom. „Hann bjargaði lífi mínu. Anton Sveinn kemur og það sem hann sagði við mig, sem ég vissi ekki, var að ég lá og horfði í augun á honum. Þegar hann stoppaði bílinn fyrir framan mig þá ligg ég hér í götunni, á hliðinni og horfi í augun á honum og veifa og reyni að hrópa eitthvað sem líkist hjálp.“ Grunaðir allir undir lögaldri Strætóskýlið er við fjölmenna umferðargötu en lögregla fékk send myndbönd og myndir frá vegfarendum sem áttu leið hjá. Lögregla telur sig vera komna með ágæta mynd af atburðarásinni en þrír eru grunaðir, allir á aldrinum 16-17 ára. Í árásinni hlaut Daníel töluverða áverka og er meðal annars handarbrotinn auk þess sem tennur brotnuðu. Hvernig líður þér í dag? „Mér líður ágætlega, ég er auðvitað svolítið mikið í hönki en ég er svo þakklátur fyrir að vera á lífi,“ segir Daníel. Óttaðist þú um líf þitt? „Rosalega, alveg svakalega mikið. Ég held ég hafi aldrei hugsað jafn mikið um það.“
Lögreglumál Garðabær Mest lesið Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Fleiri fréttir Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Sjá meira