Elvar skráður inn á EM Sindri Sverrisson skrifar 28. janúar 2026 11:09 Elvar Ásgeirsson hefur kynnst því að spila á stórmóti. vísir/Vilhelm Þjálfarateymi íslenska landsliðsins hefur ákveðið að skrá Elvar Ásgeirsson formlega inn sem átjánda leikmann í hópi Íslands á EM í handbolta.
Elvar var kallaður til Malmö eftir að nafni hans, Elvar Örn Jónsson, handarbrotnaði og ljóst varð að hann yrði ekki meira með á mótinu. Elvar Ásgeirsson hefur þó hingað til þurft að bíða utan hóps en með því að skrá hann inn á mótið er nú mögulegt að velja hann í 16 manna hóp fyrir hvern leik, til dæmis fyrir úrslitaleikinn við Slóveníu í dag sem ræður því hvort Ísland spilar meira á mótinu. Elvar er 31 árs Mosfellingur og leikmaður Ribe-Esbjerg í Danmörku. Hann hefur spilað 21 landsleik og skorað í þeim 24 mörk. Vika er síðan að Elvar var kallaður til Svíþjóðar. „Það var hringt í mig klukkan fjögur og ég dreif mig bara af stað. Var kominn hingað fjórum tímum síðar,“ sagði Elvar léttur við komuna en hann vildi ekki stela fjölskyldubílnum af konunni og kom því með lest yfir til Svíþjóðar. Elvar þekkir það að spila á stórmóti því hann var á HM 2023 eftir að hafa verið óvænt kallaður til Búdapest á Covid-mótinu mikla, EM 2022. „Ég er aðeins rólegri núna en þegar ég kom inn í það mót. Það var svolítið stress þá. Ég á fínar minningar samt frá því móti. Þetta voru fyrstu landsleikirnir mínir og það á stórmóti. Ég hef ekki átt samtal við þjálfarana um mitt hlutverk en ég er til í að gera það sem ég er beðinn um að gera.“
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Þór - ÍBV | Landsbyggðarslagur af bestu gerð Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Sjá meira