Sagðir borga 200 milljónir fyrir Kristal Mána Sindri Sverrisson skrifar 26. janúar 2026 11:01 Freyr Alexandersson er að fá landa sinn í herbúðir Brann og þar með verða íslensku leikmennirnir þrír talsins hjá félaginu. Samsett/Getty/KSÍ Kristall Máni Ingason er að verða lærisveinn Freys Alexanderssonar hjá norska knattspyrnufélaginu Brann og er mættur til móts við liðið í æfingaferð á Spáni.
Norski staðarmiðillinn Bergens Tidende greindi frá þessu í gær og birti mynd af Kristali mættum til Marbella að hitta nýja liðsfélaga. Þó að Brann eigi eftir að staðfesta tíðindi er ljóst að Kristall verður fjórði Íslendingurinn hjá félaginu, á eftir þjálfaranum Frey Alexanderssyni og þeim Sævari Atla Magnússyni og Eggerti Aroni Guðmundssyni. Margfalt dýrari en þegar hann kom til Danmerkur Danski miðillinn Tipsbladet hefur eftir heimildum að samningur Kristals sé til fjögurra ára. Hann hafi einnig verið í sigti félaga í Belgíu, Hollandi og Þýskalandi, eftir magnaða frammistöðu með Sönderjyske í dönsku úrvalsdeildinni fyrir jól. Hann skoraði til að mynda þrjú mörk og lagði upp tvö í síðustu fimm leikjunum fyrir jólafríið. Tipsbladet segir jafnframt að Brann borgi 1,4 milljón evra fyrir þennan 24 ára gamla leikmann, sem jafngildir rúmlega 200 milljónum íslenskra króna. Það er jafnframt margfalt meira en Sönderjyske borgaði til að fá Kristal frá Rosenborg árið 2023, þegar félagið á að hafa greitt aðeins 100.000 evrur.
Danski boltinn Norski boltinn Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Sjá meira