Svíar furðu lostnir og of næs: „Létu pakka sér saman“ Aron Guðmundsson skrifar 26. janúar 2026 11:34 Stuðningsmenn íslenska landsliðsins áttu stemninguna í Malmö Arena frá A til Ö í gær í leik Íslands og Svíþjóðar í milliriðlum EM í handbolta. Vísir/Vilhelm Leikmenn sænska landsliðsins eru á því að Svíar séu of góðir við mótherja sína en atvik í leik liðsins gegn Íslandi á EM í handbolta í gær hefur vakið furðu ytra.
Þegar að Ísland komst sex mörkum yfir í fyrri hálfleik í stöðuna 18-12 tók þjálfari sænska landsliðsins leikhlé. Það var þá sem tónlistarstjóri Malmö hallarinnar ákvað að setja lag af stað sem trekkti í gang víkingaklappið hjá stuðningsmönnum íslenska landsliðsins sem áttu höllina í gær. Albin Lagergren, markahæsti leikmaður sænska landsliðsins í leiknum, var spurður út í þetta atvik í viðtali eftir leik og hans mat á því var einfaldlega það að Svíar væru bara of góðir við aðra. „Það er svona sem þetta er gert í Svíþjóð, þetta er ekki nýtt fyrir okkur,“ sagði Lagergren í viðtali við Aftonbladet. Hann er á því að Svíar þyrftu að vera harðari, innan sem utan vallar. „Þetta hefði ábyggilega farið aðeins betur hjá okkur ef við hefðum verið grimmari.“ Felix Claar, leikmaður sænska landsliðsins og samherji Gísla, Ómars og Elvars hjá Magdeburg sýndi þessu skilning. „Þeir voru með góða forystu í leiknum þannig þetta var líklegast rétt ákvörðun.“ Í Besta sætinu skömmu eftir leik í Malmö í gær kom íþróttafréttamaður Sýnar, Henry Birgir Gunnarsson, einnig inn á stuðning Íslendinga í höllinni sem og góðmennsku Svíana. „Það er engin spenna í byggingunni,“ sagði Henry Birgir í Besta sætinu frá Malmö höllinni í gær. „Svíar eru svo kurteisir lúðar, klappa nánast fyrir hverju marki sem við skorum og létu pakka sér saman í stúkunni. Þetta skiptir þá ekki alveg jafn miklu máli og okkur Íslendinga.“
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Handbolti Besta sætið Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Sjá meira