Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Atli Ísleifsson skrifar 26. janúar 2026 07:19 Hiti verður á bilinu núll til sex stig, en lengst af vægt frost á Norður- og Austurlandi. Vísir/Vilhelm Mjög djúp og víðáttumikil lægð langt suðvestur í hafi þokast austur landið í dag og veldur austan hvassviðri eða stormi allra syðst á landinu. Reikna má með strekkingi annars staðar á landinu.
Á vef Veðurstofunnar segir að úrkoma verði nær eingöngu bundin við austanvert landið og þá í formi skúra eða élja, einkum suðaustanlands. „Vestantil á landinu er hins vegar spáð þurru og björtu veðri, en líklega slæðast þó einhver él inn á Vestfirði. Hiti 0 til 6 stig, en lengst af vægt frost á Norður- og Austurlandi.Það er útlit fyrir áþekkt veður fram eftir vikunni, en líklega dregur þó úr vindi á fimmtudag, en annars svipað veður,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Austan 8-15 m/s, en 15-23 syðst. Él eða slydduél um landið austanvert og á Vestfjörðum, annars þurrt að mestu. Hiti 1 til 6 stig, en víða vægt frost norðantil. Á miðvikudag: Austan og norðaustan 5-13, en 13-20 suðaustanlands. Bjart með köflum vestantil, en él austanlands. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag: Minnkandi austanátt og rigning eða slydda á Suðaustur- og Austurlandi, annars víða þurrt. Heldur hlýnandi. Á föstudag: Austanátt og dálítil úrkoma suðaustantil, en þurrt í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 5 stig, en víða vægt frost norðanlands. Á laugardag og sunnudag: Áframhaldandi austanátt og rigning eða slydda um landið suðaustanvert, en bjart með köflum vestantil. Hiti 1 til 6 stig, en vægt frost á stöku stað.
Veður Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Fleiri fréttir Sólin sleikir landsmenn Áfram bongó í kortunum og nú um allt land „Gegnumgangandi bongó um helgina“ Hitinn náði yfir tuttugu stig Möguleiki á að hiti fari yfir tuttugu stig í höfuðborginni Möguleiki á tuttugu stiga hita Útlit fyrir besta dag sumarsins á föstudaginn Skúrir víða um land og lægð nálgast austurströnd „Mjög venjulegt sumarveður“ Þónokkrar lægðir stýra veðrinu næstu daga Rigning öðru hverju Hitinn gæti náð fimmtán stigum á Sjómannadaginn Milt veður um helgina Nokkuð vætusamt og þungbúið en milt veður Allnokkrar smálægðir að hringsóla í grennd við landið Skýjað og víða skúrir Þungbúið og svalt austantil Hæg breytilegt átt en hiti allt að fimmtán stig Víða rigning með köflum og slydda eða snjókoma til fjalla austanlands Áfram snjór austantil og þæfingsfærð á Fjarðarheiði Gular viðvaranir vegna snjókomu Skúrir víða um land með strekkingi en lægir í kvöld Úrkomulítið sunnanlands en skúrir á Austurlandi Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Suðvestanátt með skúrum í dag Austanátt og úrkomulítið Lægðadrag nálgast landið með rigningu og súld Milt, bjart og hlýtt á Suðvesturlandi í dag Allt að tólf stiga hiti í dag og gæti náð sextán stigum á morgun Stöku skúr síðdegis sunnan- og vestanlands Sjá meira