Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 22. janúar 2026 13:01 Staffan Olsson brosti er hann rifjaði upp rimmurnar gegn Íslandi. vísir/vilhelm Staffan „Faxi“ Olsson er var um árabil einn hataðasti maður Íslands enda fór hann iðulega á kostum er Svíar pökkuðu okkur saman á handboltavellinum á síðustu öld.
Þessi síðhærði stríðsmaður, sem spilaði með í vörinni, var holdgervingur Svíagrýlunnar sem blessunarlega var kveðin í kútinn snemma á þessari öld. Nú er Faxi orðinn 61 árs gamall en er að mörgu leyti eins. Hann er enn með síðu lokkana þó svo lítið sé eftir af hári á hvirflinum. Og hann er að sjálfsögðu enn með í vörinni. Klippa: Faxi Olsson spáir Íslandi góðu gengi Ég sá kallinn á liðshótelinu í Malmö í morgun þar sem hann var að búa sig til brottfarar þar sem hans lið, Holland, er úr leik á mótinu. Ég stóðst ekki mátið að biðja Olsson um viðtal og hann var meira en til í það. „Ég á engan uppáhaldsleik gegn Íslandi en þeir voru mjög margir. Það var eftirminnilegt samt að spila tvo æfingaleiki við Ísland fyrir HM 1995 á Íslandi. Það var fullt af fólki að horfa á og margir voru pirraðir út í mig. Það var samt ekkert alvarlegt og ég hafði alltaf gaman af því að spila á Íslandi,“ sagði Faxi en hann virðist hafa verið meðvitaður um að Íslendingum væri ekkert allt of vel við sig. „Ég heyrði af því. Ég tók það ekki alvarlega. Þetta var svona ást og hatur á sama tíma. Ég á bara góðar minningar frá Íslendingum og leikmönnum Íslands.“ Spáir Íslandi í undanúrslit Olsson gerir ráð fyrir því að fjögur lið í milliriðli Íslands muni berjast um farmiðana í undanúrslit. „Þessi milliriðill er ekki eins sterkur og hinn. Þetta verða Svíþjóð, Ísland, Króatía og Ungverjaland sem munu berjast um farseðlana í undanúrslitin. Ég tel Svíþjóð og Ísland líklegust til að komast í undanúrslit,“ sagði Olsson sem hefur ekki séð mikið til íslenska liðsins á mótinu enda upptekinn af því að stýra sínu liði. „Ísland er með mjög gott lið og er líka komið með frábæran markvörð en þannig hefur það ekki alltaf verið. Nú á Ísland risastóran möguleika á að gera eitthvað stórt.“
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Sjá meira