Ofurnæmni Önnu Birtu: Hefur heyrt hugsanir fólks í Kringlunni Stefán Árni Pálsson skrifar 21. janúar 2026 15:02 Anna Birta segist finna fyrir ótal hlutum í kringum sig. Anna Birta Lionaraki er eftirsóttur miðill, bæði hér heima og erlendis. Hún uppgötvaði miðilshæfileikana á unglingsaldri og reyndi fyrst um sinn að afneita þessum eiginleika. Í dag lifir hún í sátt við sína tilveru, starfar sem miðill og lifir á því.
Ísland í dag heimsótti Önnu Birtu, en í dag veitir hún sína miðilsþjónustu eingöngu í gegnum fjarsímtöl. „Fólk finnur mig bara á Instagram eða Facebook og ég fæ að sjá það í gegnum vídjóspjall og svo heyri ég bara. Hvort sem manneskja er í Ástralíu eða beint fyrir framan mig þá heyri ég alveg það sama eða sé,“ segir Anna Birta og bætir við að það krefjist minna af henni líkamlega að hitta fólk í fjarsímtali heldur en í persónu. „Ef ég snerti þig þá hleðstu niður inni í kerfið mitt þannig að ég er kannski þrjá daga að taka þig út úr mér,“ bætir hún við. Getur slökkt á næmninni Anna Birta lýsir því að geta kveikt og slökkt á sínum hæfileikum eins og að drekka vatn. Hún segist sjá inn í hjarta fólks og líkama, jafnvel einstök líffæri. „Ef við segjum að líkaminn sé gagnagrunnur þá virðist það vera þannig að líkaminn bara man allt sem hann hefur farið í gegnum og sorgirnar eru þar þangað til við vinnum úr því hvort sem þú leitar til miðils eða sálfræðings eða hvað sem hentar,“ segir hún. Þessi ofurnæmni Önnu Birtu, eins og hún kallar þetta, hefur margar hliðar. Til dæmis þessa: „Ég get fundið lykt af skjaldkirtilsvandamálum eða ef kona er barnshafandi. Hvort sem það er á netinu eða ekki,“ segir Anna Birta. „Ég hef alveg labbað í Kringlunni og heyrt: „Ó mæ god, ég er að halda framhjá. Ég verð að gera eitthvað.“ Fólk er bara að hugsa og maður getur heyrt hugsanir,“ bætir hún við og segir mikilvægt að loka á slíkt í daglega lífinu. Anna Birta heldur miðilsfund þann 1.febrúar næstkomandi og hann er ekki hefðbundinn - ekki frekar en hún.
Ísland í dag Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Fleiri fréttir Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Sjá meira