Opinberar erjur Beckham-fjölskyldunnar: „Ég vil ekki sættast við fjölskyldu mína“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. janúar 2026 20:45 Fjölskyldan í október 2023. EPA Brooklyn Beckham, frumburður Davids og Victoriu Beckham, birti langa færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann sakar foreldra sína um lygar og pretti til þess að viðhalda fullkominni ímynd fjölskyldunnar. Þá hafi þau verið illviljuð gagnvart eiginkonu Brooklyn. „
Ég hef þagað í mörg ár og gert allt sem ég get til að halda þessum málum fyrir mig. Því miður hafa foreldrar mínir og teymi þeirra haldið áfram að leita til fjölmiðla, sem gefur mér ekkert annað val en að tala mínu máli og segja sannleikann um aðeins sumar af þeim lygum sem hafa verið birtar,“ skrifar Brooklyn í færslu í hringrás (e. story) á Instagram. „Ég vil ekki sættast við fjölskyldu mína. Mér er ekki stjórnað, ég er að standa með sjálfum mér í fyrsta skipti á ævinni.“ Í færslunum, sem eru alls sex, fer Brooklyn yfir ósætti sitt við fjölskylduna og sakar foreldrana ítrekað um að taka vörumerkið Beckham fram yfir fjölskylduna. Hann segir opinberlega ímynd fjölskyldunnar vera sett ofar öllu. „Fjölskyldukærleikurinn ræðst af því hversu mikið þú birtir á samfélagsmiðlum eða hversu fljótur þú ert að mæta og stilla þér upp fyrir fjölskyldumyndatöku, jafnvel þótt það sé á kostnað annarra skuldbindinga okkar,“ segir hann. „Við höfum lagt okkur fram í mörg ár við að mæta og sýna stuðning á hverri einustu tískusýningu, í hverju einasta partíi og á hverjum einasta fjölskylduviðburði til að sýna „okkar fullkomnu fjölskyldu. En í eina skipti sem konan mín bað mömmu um stuðning til að bjarga heimilislausum hundum í skógareldunum í Los Angeles, þá neitaði mamma.“ Niðurlæging af hálfu Victoria Mikið af ósættinu varðar eiginkonu Beckham, Nicola Peltz, en þau gengu í hjónaband árið 2022. Stirt samband Peltz og tengdamóður hennar hefur ítrekað verið til umfjöllunar síðan og var mikið fjallað um þegar Victoria hætti við að hanna og sauma brúðarkjól Nicola. „Foreldrar mínir hafa reynt endalaust að eyðileggja samband okkar síðan fyrir brúðkaupið mitt og hafa ekki hætt. Mamma hætti við að sauma kjól Nicolu á elleftu stundu þrátt fyrir hversu spennt hún var að klæðast hönnun hennar, sem neyddi hana til að finna nýjan kjól í flýti,“ segir Brooklyn. Kvöldið fyrir brúðkaupið hafi ónefndir fjölskyldumeðlimir sagt Brooklyn að Nicola væri ekki hluti af fjölskyldunni. Þá hafi Victoria eyðilagt fyrsta dans þeirra hjóna með því að taka yfir dansinn fyrir framan gestina fimm hundruð sem voru þar. „Hún dansaði mjög óviðeigandi við mig fyrir framan alla. Ég hef aldrei fundið fyrir meiri óþægindum eða niðurlægingu. Við vildum endurnýja heitin okkar til að skapa nýjar minningar um brúðkaupsdaginn okkar sem veita okkur gleði og hamingju, ekki kvíða og skömm.“ David vildi ekki hitta frumburðinn Brooklyn tekur einnig fyrir föður sinn, David Beckham. Brooklyn hafi ásamt Peltz ferðast til London til að vera viðstaddur afmælisfögnuð Davids en sá síðarnefndi hafi ítrekað neitað að hitta þau meðan á dvölinni stóð. Þannig fór það að þau hittust einungis í afmælisfögnuðinum þar sem hundruð gesta voru saman komnir. „Þegar hann loksins samþykkti að hitta mig, var það á þeim forsendum að Nicola yrði ekki boðið með. Það var eins og að vera löðrungaður. Seinna, þegar öll fjölskyldan ferðaðist til LA, neituðu þau að hitta mig.“ Kvíðinn horfinn Brooklyn segir að síðan hann fór að standa með sjálfum sér hafi foreldrar hans ráðist á hann bæði í fjölmiðlum en líka með einkaskilaboðum. Þau hafi fengið bræður Brooklyn, Romeo og Cruz, til að hafa samband við hann í gegnum samfélagsmiðla. Að endingu hafi þeir lokað á hann algjörlega á samfélagsmiðlum. „Alla mína ævi hafa foreldrar mínir stjórnað frásögnum í fjölmiðlum um fjölskyldu okkar. Tilgerðarlegar færslur á samfélagsmiðlum, fjölskylduviðburðir og óeinlæg sambönd hafa verið fastur liður í því lífi sem ég fæddist inn í. Nýlega hef ég séð með eigin augum hversu langt þau eru tilbúin að ganga til að koma óteljandi lygum í fjölmiðla, að mestu á kostnað saklauss fólks, til að viðhalda eigin ímynd. En ég trúi því að sannleikurinn komi alltaf í ljós,“ segir hann. Kvíðinn sem hann hafi upplifað frá æsku hafi horfið þegar hann fluttist á brott frá fjölskyldunni. „Eiginkona mín og ég viljum ekki lifa lífi sem mótast af ímynd, fjölmiðlum eða handleik. Allt sem við viljum er friður, næði og hamingja fyrir okkur og framtíðarfjölskyldu okkar.“
Hollywood Bretland Deilur hjá Beckham-fjölskyldunni Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Lífið samstarf Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira