Pavel hjálpar Grindvíkingum Sindri Sverrisson skrifar 11. janúar 2026 19:21 Pavel Ermolinskij stýrði Tindastóli til fyrsta Íslandsmeistaratitils félagsins, vorið 2023. vísir/Hulda Margrét Körfuboltasérfræðingurinn Pavel Ermolinskij er mættur aftur í þjálfun, að minnsta kosti í kvöld, því hann er til aðstoðar hjá Grindvíkingum í stórleiknum við Stjörnuna í VÍS-bikarnum.
Pavel hefur haldið sig frá þjálfun síðan hann hætti hjá Tindastóli. Hann tók við liðinu í janúar 2023 og stýrði því í kjölfarið til fyrsta Íslandsmeistaratitilsins í sögu félagsins, en fór svo í veikindaleyfi vorið 2024 og hefur ekki þjálfað síðan. Hann fór svo mikinn í umfjöllun um Bónus-deildina á síðustu leiktíð sem sérfræðingur, bæði í sjónvarpi og í eigin hlaðvarpsþáttum með vini sínum Helga Má Magnússyni. Það er einmitt Helgi sem að Pavel aðstoðar í bikarslagnum við Stjörnuna í kvöld en Helgi hefur verið aðstoðarmaður Jóhanns Þórs Ólafssonar í vetur. Jóhann er kominn í ótímabundið leyfi, vegna veikinda eiginkonu sinnar, en undir hans stjórn hefur Grindavík verið á toppi Bónus-deildarinnar í vetur. Jóhann sendi stuðningsmönnum Grindavíkur skilaboð í gegnum miðla körfuknattleiksdeildarinnar í síðustu viku. „Síðastliðinn mánudag fengum við hjónin þær fréttir að kona mín Sif Rós hefði greinst með MND-taugasjúkdóm. Af þeim ástæðum hef ég tekið ákvörðun um að fara í ótímabundið leyfi frá þjálfun. Helgi Már mun stýra liðinu í minni fjarveru og gera það með sóma. Ég kem svo tvíefldur til baka og klára þetta með ykkur,“ skrifaði Jóhann. Af viðtali við Helga á RÚV fyrir bikarleikinn í kvöld að dæma verður Pavel til aðstoðar þann tíma sem Jóhann verður fjarverandi.
Bónus-deild karla VÍS-bikarinn UMF Grindavík Tengdar fréttir Jóhann í leyfi frá þjálfun Grindavíkurliðsins Jóhann Þór Ólafsson mun ekki stýra toppliði Grindavíkur í Bónus-deild karla í körfubolta á næstunni en þetta kemur fram í tilkynningu á miðlum Grindvíkinga. 9. janúar 2026 06:44 Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira
Jóhann í leyfi frá þjálfun Grindavíkurliðsins Jóhann Þór Ólafsson mun ekki stýra toppliði Grindavíkur í Bónus-deild karla í körfubolta á næstunni en þetta kemur fram í tilkynningu á miðlum Grindvíkinga. 9. janúar 2026 06:44