Norðaustlæg átt og allvíða él Atli Ísleifsson skrifar 9. janúar 2026 07:17 Frost verður á bilinu eitt til tólf stig og kaldast inn til landsins. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir norðaustlægri átt í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu, en að það lægi smám saman suðaustantil.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði norðlæg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu síðdegis. Það verða allvíða él en léttskýjað að mestu suðvestantil. Frost verður á bilinu eitt til tólf stig og kaldast inn til landsins. „Á morgun og sunnudag er útlit fyrir norðlæga eða breytilega átt 3-10 m/s, en heldur hvassari með ströndinni syðst á landinu. Dálítil él á víð og dreif og áfram kalt í veðri, en yfirleitt þurrt á Suðvestur- og Vesturlandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Breytileg átt 3-8 m/s, en 8-15 syðst. Stöku él í flestum landshlutum, en lengst af þurrt vestanlands. Frost 2 til 12 stig. Á sunnudag: Austan og norðaustan 5-13, hvassast sunnantil. Skýjað með köflum og dálítil él á víð og dreif, en þurrt vestantil, frost 1 til 8 stig. Á mánudag: Norðan 8-15 og snjókoma austast, él norðantil, en bjart með köflum á sunnan- og suðvestanverðu landinu. Frost 0 til 6 stig. Á þriðjudag: Minnkandi norðanátt og skýjað. Él á austanverðu landinu í fyrstu, en léttir til sunnan- og vestanlands. Kólnar í veðri, frost 2 til 12 stig um kvöldið. Á miðvikudag og fimmtudag: Útlit fyrir breytilega átt. Bjart að mestu, en skýjað norðaustantil. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir Færð geti víða spillst hratt Él og slydduél í dag og önnur lægð á morgun Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Kröpp lægð yfir landinu og úrkoman blönduð Gular veðurviðvaranir í kortunum Köldu lofti beint til landsins Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Ört dýpkandi lægð á leiðinni og appelsínugular viðvaranir Appelsínugul viðvörun á morgun Vara við stórhríð á Austurlandi Snjókoma víða en bjart sunnan heiða Væta sunnantil og töluverð hláka í höfuðborginni Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu vegna snjókomu Snjókoma á höfuðborgarsvæði í dag og á morgun Úrkomusvæði með snjókomu fer yfir vesturhelming landsins Gular veðurviðvaranir á Austurlandi Snýst í norðanátt og snarpar hviður austantil Útlit fyrir lægðagang og umhleypinga Hvöss austanátt fylgir alldjúpri lægð í dag Gul veðurviðvörun á Suðausturlandi Hitinn að skríða yfir frostmark sunnan heiða Herðir á frosti í kvöld Él og snjókoma norðan- og austantil Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi Draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga Vara við snörpum vindhviðum Sjá meira