Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 7. janúar 2026 08:26 Morgunblaðið, mbl.is og K100 heyra undir fjölmiðlasamsteypu Árvakurs. visir/Vilhelm Vikulegri útgáfu ViðskipaMoggans verður hætt og þá hafa þrjár deildir hjá mbl.is og Morgunblaðinu verið sameinaðar í eina. Breytingarnar sem gerðar hafa verið á ritstjórn Morgunblaðsins og fréttavefsins mbl.is sem fela í sér að þær deildir sem annast hafa almennan fréttaflutning á blaði og vef hafa verið sameinaðar. Sömuleiðis hefur viðskiptadeild blaðsins, sem hefur sinnt umfjöllun bæði á vef og í blaði, verið færð undir sömu deild.
Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag, en Matthías Johannessen, sem áður stýrði viðskiptadeild blaðsins, er nú aðalfréttastjóri yfir sameinaðri deild. „Sameiningunni er ætlað efla samskipti vefs og blaðs og tryggja þannig áskrifendum og lesendum öllum enn öflugri þjónustu,“ segir meðal annars um breytingarnar í Morgunblaðinu í dag. Þótt útgáfu ViðskiptaMoggans verði hætt er lagt upp með að viðskiptasíðum í aðalblaði Morgunblaðsins verði fjölgað og aukin áhersla sett á viðskiptaumfjöllun á mbl.is. Tilkynna um breytingar eftir uppsagnir um áramótin „Ástæðan er, líkt og í þessum breytingum í heild sinni, að breytt umhverfi upplýsinga og fjölmiðlunar kallar á aukið samspil miðla, aukinn hraða og aukna skilvirkni í fréttavinnslu,“ segir ennfremur um málið í frétt Moggans í dag. Líkt og Vísir greindi frá á dögunum voru nokkrar uppsagnir hjá Árvakri, sem rekur mbl.is og Morgunblaðið, um áramótin. Þannig var Kolbrúnu Bergþórsdóttur, blaðamanni, gagnrýnanda og pistlahöfundi, og Víði Sigurðarsyni, fréttastjóra íþróttadeildar, sagt upp störfum hjá Morgunblaðinu, auk þess sem Bolli Már Bjarnason, útvarpsmaður á K100, var í hópi þeirra sem sagt var upp. Þá var þremur blaðamönnum sagt upp mánuði áður, eða í lok nóvember síðastliðnum. Ekki kemur fram í umfjöllun Morgunblaðsins hvort breytingarnar sem greint er frá í dag hafi í för með sér frekari fækkun stöðugilda.
Fjölmiðlar Mest lesið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Samstarf Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Sjá meira