Kólnar verulega á fyrstu dögum ársins Atli Ísleifsson skrifar 1. janúar 2026 07:59 Gera má ráð fyrir frosti núll til átta stigum í dag. Vísir/Vilhelm Norðlægar áttir verða ríkjandi næstu daga og verða þær af og til allhvassar á austanverðu landinu með dálitlum éljum. Það verður þó yfirleitt mun hægari og bjart í öðrum landshlutum.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir að með þessum norðlægum áttum komi kalt loft til landsins og vegna þess kólni verulega næstu daga. Gera má ráð fyrir norðlægri átt í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu þar sem hvassast verður fyrir austan. „Bjart að mestu, en stöku él á austanverðu landinu. Kólnar í veðri, frost um mest allt land í kvöld,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðvestan 10-18 m/s og stöku él austantil, en dregur úr vindi síðdegis. Annars mun hægari og yfirleitt bjart. Frost 1 til 10 stig yfir daginn, kaldast inn til landsins. Á laugardag: Breytileg átt 3-8 og bjart að mestu. Skýjað á norðanverðu landinu, en lengst af þurrt. Frost 4 til 14 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands. Á sunnudag: Breytileg átt 3-8 og skýjað með köflum, en þurrt að kalla. Yfirleitt bjart sunnanlands. Áfram kalt í veðri. Á mánudag: Austlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en stöku él á víð og dreif. Frost 0 til 12 stig yfir daginn, kaldast inn til landsins. Á þriðjudag: Breytileg átt og skýjað með köflum. Él á norðanverðu landinu, en þurrt að mestu sunnanlands. Dregur heldur úr frosti. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðlæga átt með snjókomu og hlýnandi veðri.
Veður Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Sjá meira