Njarðvík búin að losa sig við De Assis Sindri Sverrisson skrifar 27. desember 2025 19:00 Julio De Assis skorar ekki fleiri stig fyrir Njarðvík í vetur. vísir/Anton Njarðvíkingar eru staðráðnir í að vera með í úrslitakeppninni í Bónus-deild karla í körfubolta í vor og þangað stefna þeir án Julio De Assis sem félagið hefur nú losað sig við.
Njarðvík sótti De Assis í haust, örskömmu áður en leiktíðin í Bónus-deildinni hófst, eftir að Carlos Mateo fékk sig lausan undan samningi. De Assis þótti hins vegar ekki standa sig vel með Njarðvík og var til að mynda harðlega gagnrýndur í Bónus Körfuboltakvöldi á Sýn Sport. Hann lék ellefu deildarleiki með Njarðvík og skoraði að meðaltali í þeim 10,2 stig og tók 6,8 fráköst. Áður hafði De Assis spilað með þremur íslenskum liðum því hann lék fyrst með Vestra veturinn 2021-22 og svo einnig með Breiðabliki og Grindavík. Í tilkynningu Njarðvíkinga er De Assis þakkað fyrir hans framlag og þar kemur einnig fram að vænta megi frekari tíðinda af leikmannamálum á næstunni. „Við erum að undirbúa okkur fyrir seinni hluta tímabilsins og ætlum okkur ekkert annað en í úrslitakeppnina,” sagði Hafsteinn Sveinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur. Njarðvík er með átta stig eftir ellefu leiki, eða hálft tímabil, og situr í 9. sæti en með jafnmörg stig og ÍR og Álftanes sem eru í úrslitakeppnissætum. Liðin eru aðeins tveimur stigum frá fallsæti því ÍA og Þór Þ. koma næst með sex stig og botnlið Ármanns er svo með fjögur stig.
Bónus-deild karla UMF Njarðvík Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira