Stórstjarna úr WNBA-deildinni í heimsókn á Íslandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2025 11:30 Nneka Ogwumike átti mjög gott tímabil með Seattle Storm á þessu ári og skoraði yfir átján stig í leik. Getty/ Ian Maule Bandaríska körfuboltakonan Nneka Ogwumike var stödd á Íslandi í jólamánuðinum eins og sjá mátti á samfélagsmiðlum hennar.
Ogwumike er 35 ára gömul, 188 sentímetrar á hæð og núverandi leikmaður Seattle Storm. Hún hefur leikið í deildinni frá 2012 og var formaður leikmannasamtakanna í sex ár frá 2016 til 2022. Ogwumike var mjög hrifin af Íslandi ef marka má samfélagsmiðla og þar mátti sjá myndir frá ferðum hennar um íslenska náttúru. Árið 2016 varð hún bæði WNBA-meistari með Los Angeles Sparks sem og kosin mikilvægasti leikmaður WNBA-deildarinnar. Hún var kosin nýliði ársins á sínum tíma og hefur verið tíu sinnum valin í stjörnuleikinn og átta sinnum í fyrsta (1) eða annað (7) úrvalslið deildarinnar. Á ferli sínum í WNBA er Ogwumike með 16,7 stig, 7,5 fráköst og 2,1 stoðsendingu að meðaltali í 436 leikjum. Hún hefur skorað 14,6 stig að meðaltali í leik í 40 leikjum í úrslitakeppni. Ogwumike hefur einnig unnið EuroLeague með Dynamo Kursk og pólsku deildina með CCC Polkowice. Hún var valin ein af 25 bestu leikmönnum í sögu WNBA á 25 ára afmæli deildarinnar árið 2021. Ogwumike hefur einnig tvisvar orðið heimsmeistari með bandaríska landsliðinu en hún hætti að spila með landsliðinu árið 2020 og reyndi að fá leyfi FIBA til að spila fyrir Nigeríu. Það gekk ekki eftir þrátt fyrir að hún hafi sótt þrisvar sinnum um það. View this post on Instagram A post shared by Nneka Ogwumike (@nneka)
WNBA Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Sjá meira