Lægðin á undanhaldi Jón Ísak Ragnarsson skrifar 13. desember 2025 08:44 Esjan. Vísir/Vilhelm Djúpa lægðin suður af landi sem stjórnaði veðrinu hér á landi í gær og fyrradag, sem olli hvössum vindi nokkuð víða og einnig þrumuveðri á sunnanverðu landinu, hefur misst mátt sinn. Miðja lægðarinnar fór yfir landið í nótt og grynntist hún nokkuð hratt.
Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar, en veðurspá dagsins er eftirfarandi: Hæg suðvestlæg eða breytileg átt, skýjað að mestu og smá skúrir á víð og dreif og hiti 0 til 5 stig. Útlit fyrir norðaustan 5-10 m/s með rigningu suðaustantil í kvöld, en hæga norðanátt og dálítil él nyrst og kólnar heldur. Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s á morgun. Skúrir eða él um tíma í flestum landshlutum og hiti kringum frostmark. Útlit fyri lítilsháttar snjókomu eða slyddu við norðurströndina seint annað kvöld. Hugleiðingar veðurfræðings: Í dag lægir og styttir upp að langmestu leyti, og hiti þokast smám saman niðurávið. Í kvöld fer næsta lægð nokkuð hratt til norðurs fyrir austan land. Hún veldur hvassviðri hjá frændum okkar í Færeyjum og stormi þar aðfaranótt sunnudags, en hún veldur litlum áhrifum hjá okkur. Á sunnudag er útlit fyrir breytilega vindátt á Íslandi, vindhraði yfirleitt vel innan við 10 m/s. Þó verður á einhverjum tímapunkti vart við úrkomu í flestum landshlutum, ýmist skúrir eða él og hitinn kringum frostmarkið. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag:Hæg norðlæg eða breytileg átt og dálítil él, en bjart um landið suðvestanvert. Frost 0 til 5 stig.Á þriðjudag:Hæg breytileg átt og víða bjartviðri, en stöku él við ströndina. Frost 1 til 10 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Vaxandi austanátt og þykknar upp sunnanlands um kvöldið.Á miðvikudag:Hvöss austanátt og rigning eða slydda með köflum, en snjókoma til fjalla, talsverð úrkoma á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hlýnandi veður.Á fimmtudag:Norðankaldi og dálítil rigning eða skúrir, en hvassviðri og snjókoma eða slydda norðvestantil. Hiti 0 til 5 stig.Á föstudag:Útlit fyrir hæga norðlæg átt og lítilsháttar snjókomu eða él, en úrkomulaust að kalla sunnan heiða. Kólnandi veður.
Veður Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Sjá meira