Víðast bjart veður en hvasst austast á landinu Atli Ísleifsson skrifar 12. nóvember 2025 07:00 Frost verður á bilinu núll til átta stig í dag. Vísir/Vilhelm Það verður ansi hvasst austast á landinu í dag og einkum á sunnanverðu Austfjörðum þar sem varasamar hviður og sterkur meðalvindur getur valdið vegfarendum vandræðum. Gul viðvörun er í gildi fyrir Austfirði í dag og fram á kvöld.
Á vef Veðurstofunnar segir að annars staðar á landinu verði vindur mun skaplegri. Í kvöld og nótt dragi svo úr vindi fyrir austan. Gera má ráð fyrir skýjuðu veðri norðan- og austantil og stöku él norðaustanlands framan af degi. Annars verður bjart veður og frost á bilinu 0 til 8 stig. Kaldast verður inn til landsins. „Á morgun sækir svo að landinu mildari vestlæg átt og mun fylgja henni dálítil úrkoma, ýmist snjókoma eða slydda. Ekki er gert ráð fyrir miklu úrkomumagni. Þá hlánar jafnframt á vestanverðu landinu, en fyrir austan léttir til og áfram verður frost á þeim slóðum. Víðast hvar þurrt um helgina og þokkalega milt vestantil, en líklegast áfram frost á austurhelmingi landsins,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Vísir/Vilhelm Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Hæg breytileg átt og bjartviðri, en vestan 3-8 m/s og þykknar upp eftir hádegi með lítilsháttar snjókomu eða slyddu við vestur- og norðurströndina. Hiti um og undir frostmarki, en hlánar við vesturströndina er líður á daginn. Á föstudag: Fremur hæg breytileg átt, en suðvestan 8-13 m/s norðvestantil. Skýjað, en léttir til á austanverðu landinu. Frost 0 til 5 stig, en hiti 0 til 6 stig á vesturhluta landsins. Á laugardag: Norðvestlæg eða breytileg átt, víða hæg. Skýjað og hiti í kringum frostmark, en léttir til og kólnar er líður á daginn. Á sunnudag: Norðlæg eða breytilega átt og víða léttskýjað. Frost 1 til 7 stig, en sums staðar frostlaust við suður- og vesturströndina. Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir norðlæga átt, skýjað og dálítil él, en bjart sunnan heiða. Frost um allt land.
Veður Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Bjart og fallegt verkalýðsdagsveður Suðvestanátt með skúrum og slydduéljum Skúrir og slydduél en léttskýjað á Norður- og Austurlandi Súld eða rigning og milt veður Allhvöss sunnanátt með rigningu Enn má búast við slyddu eða snjókomu Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Smávegis væta norðantil en bjart sunnantil Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Sjá meira