Mikilvægt fyrir United að hamra járnið meðan það er heitt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. október 2025 13:00 Bryan Mbeumo átti góðan leik með Manchester United í sigri liðsins um síðustu helgi. Getty/Ash Donelon/ Fantasýn-strákarnir ræddu meðal annars Manchester United og þá sérstaklega einn leikmann liðsins í nýjasta þætti sínum þar sem þeir ræddu um réttan undirbúning fyrir komandi helgi í Fantasy-leik ensku úrvalsdeildarinnar.
Fantasýn er Fantasy Premier League-hlaðvarp Sýnar, heimili enska boltans á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Albert Þór Guðmundsson og Sindri Kamban. Ekki að fara blanda sér í titilbaráttuna „Þetta United-lið er ekki að fara blanda sér í titilbaráttuna. Ég held að enginn virkilega trúi því. Þetta er enn þá frekar ótraust en það eru klárlega batamerki,“ sagði Albert Þór Guðmundsson. „Þetta eru klárlegar framfarir en hversu langt fara þær með liðið. Þú veist, auðvitað er mómentum með liðinu núna og mikilvægt að hamra járnið meðan það er heitt. Það verður bara að koma í ljós hvernig gengur hjá Amorim að viðhalda þessum neista sem er kominn á Old Trafford,“ sagði Albert. Eins og maður sá í Brentford Leikmaðurinn sem þeir hafa klárlega áhuga á að hafa í fantasy er framherjinn Bryan Mbeumo. „Mbeumo er kannski saga þessa leiks, myndi ég segja. Hann skorar tvö mörk og fyrra markið hans er alveg frábært. Bara svona týpískt Mbeumo-mark sem maður sá í Brentford,“ sagði Albert. Mbeumo er á fyrsta tímabili með Manchester United eftir að hafa skorað tuttugu deildarmörk með Brentford á síðasta tímabili. Mbeumo skoraði tvö mörk í fyrstu átta leikjunum en tvöfaldaði markaskor sitt í síðasta leik. Með einstaklingsgæði „Hann er með einstaklingsgæði, hann er góður skotmaður og góður í því að klára færin. Þannig að þú býst við að leikmaður eins og Mbeumo sé að skila fleirum mörkum en xG-ið hjá sér,“ sagði Albert. Svo er hann með þann kost að hann er svona leikmaður greinilega sem er líklegur til að taka 90 mínútur. Þannig að, þú veist, hann er þarna enn þá inni á vellinum þegar leiðir 3-2 og Brighton þarf að sækja jöfnunarmarkið. Þá bíður hann þarna frammi og nær að skora í skyndisókn,“ sagði Albert. Það má hlusta á allan þáttinn hér fyrir neðan.
Enski boltinn Fantasýn Mest lesið Hundur Lindsey Vonn dó daginn eftir að hún fótbrotnaði á ÓL Sport „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ Enski boltinn Gamli Valsarinn í stuði þegar Bodö skellti Inter í Meistaradeildinni Fótbolti Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Íslenski boltinn Skíðasambandinu fannst Halldór of slæm fyrirmynd Sport „Okkur var refsað fyrir það“ Enski boltinn Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Enski boltinn Vann Ólympíugull á afmælisdaginn sinn: „Ég gat ekki hætt að gráta“ Sport Stækkaði typpi skíðastökkvara Sport „Ég efaðist um hversu mikinn kjark ég hefði í hjartanu“ Sport Fleiri fréttir „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ „Okkur var refsað fyrir það“ Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Saka verður sá launahæsti Salah og trúfélagar fá drykkjarhlé í miðjum leikjum Mikel Arteta óttast að tímabil Arsenal stefni í kunnuglega átt Lærisveinar Lampard höfðu betur í toppslagnum Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Dregið í enska bikarnum: Chelsea heimsækir Hollywood lið Wrexham Heldur ævintýri Rooney og lærisveina hans í Macclesfield áfram í kvöld? Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Sjá meira