Nýliðar KR stöðvuðu sigurgöngu Njarðvíkur og fyrsti sigurinn í 65 ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2025 21:20 Rebekka Rut Steingrímsdóttir átti frábæran leik fyrir KR í kvöld. Vísir/Anton Brink Ármann vann í kvöld sinn fyrsta sigur í Bónus deild kvenna í körfubolta á þessari leiktíð og þar með fyrsta sigur kvennaliðs félagsins í efstu deild frá 1960. Á sama tíma stöðvuðu hinir nýliðarnir í KR sigurgöngu Njarðvíkurliðsins.
KR vann sjö stiga sigur á Njarðvík í Vesturbænum en Njarðvíkurkonur voru búnar að vinna fyrstu þrjá leiki sína á tímabilinu. KR vann leikinn 89-82 eftir að hafa verið 46-44 yfir í hálfleik. Frábær og óvæntur sigur hjá KR-konum sem ætla að vera með í baráttunni í Bónus deild kvenna í vetur. Rebekka Rut Steingrímsdóttir var frábær hjá KR með 19 stig og 10 stoðsendingar en Molly Kaiser var stigahæst með 27 stig. Kristrún Ríkey Ólafsdóttir var einnig mjög öflug með 13 stig og 15 fráköst. Brittany Dinkins skoraði 25 stig fyrir Njarðvík og Danielle Rodriguez var með 21 stig. Njarðvík fékk hins vegar aðeins samtals 20 stig frá íslensku leikmönnunum sínum í kvöld. Ármann mætti í Icelandic Glacial höllina í Þorlákshöfn og vann fimm stiga sigur á Hamar/Þór, 78-73. Bæði liðin höfðu tapað þremur fyrstu leikjum sínum á tímabilinu. Þetta var fyrsti sigur Ármanns í deild þeirra bestu í 65 ár. Dzana Crnac var frábær í Ármannsliðinu með 25 stig, Sylvía Rún Hálfdanardóttir var með 21 stig og 8 fráköst og Khiana Johnson bætti við 20 stigum. Jadakiss Guinn skoraði 24 stig fyrir Hamar/Þór og Jóhanna Ýr Ágústsdóttir var með 14 stig.
Bónus-deild kvenna Ármann KR UMF Njarðvík Hamar Þór Þorlákshöfn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Sjá meira