Maðurinn í lífshættu og til rannsóknar hver veitti áverkana Vésteinn Örn Pétursson skrifar 21. október 2025 15:52 Frá Grindavík. Vísir/Vilhelm Maður liggur nú á gjörgæslu með lífshættulega stunguáverka sem hann fékk um helgina í Grindavík. Lögregla taldi fyrst að hann hefði veitt sér áverkana sjálfur en rannsakar nú hvort um stunguárás hafi verið að ræða.
Ríkisútvarpið greindi fyrst frá þessu og hefur eftir Nönnu Lind Stefánsdóttur, aðstoðaryfirlögregluþjóni rannsóknardeildar lögreglunnar. Í samtali við fréttastofu segir hún að ekki sé útilokað að maðurinn hafi orðið fyrir stunguárás. Hann hafi ekki verið einn í íbúðinni, en enginn hafi verið handtekinn. Á laugardag birti lögreglan tilkynningu þar sem fram kom að brugðist hefði verið við tilkynningu um hávaða í íbúð í Grindavík. Þegar lögregla hafi komið á vettvang hafi komið í ljós að maður hefði veitt sjálfum sér stunguáverka. Því hafi lögregla kallað á sjúkralið til aðstoðar. Maðurinn hafi í kjölfarið verið fluttur á Landspítalann í Fossvogi til frekari aðhlynningar. „Samkvæmt fyrstu upplýsingum sem lögregla fékk þegar málið kom upp var tilkynnt um stunguáverka. Við rannsókn málsins útilokum við ekkert, og þar með ekki að um stunguárás hafi verið að ræða. Rannsóknin beinist meðal annars að því,“ segir Nanna Lind. Hún segist litlar aðrar upplýsingar geta veitt um framgang rannsóknarinnar eða líðan mannsins, fyrir utan þá staðreynd að hann sé í lífshættu.
Lögreglumál Grindavík Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira