„Mjög erfitt fyrir okkur ef við klárum þetta ekki í kvöld“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 3. október 2025 12:31 Berglind Björg er markahæst í Bestu deildinni og stefnir á að vera Íslandsmeistari í kvöld. Vísir/Ívar Breiðablik fær þriðja tækifærið til að vinna Íslandsmeistaratitilinn í kvöld þegar liðið mætir Víkingi. Mikilvægt er fyrir Blikana að klára verkefnið í kvöld því framundan er mikið leikjaálag, en Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur ekki trú á öðru en að sigur skili sér loksins.
Breiðablik þarf aðeins einn sigur til að verða Íslandsmeistari en það hefur mistekist í síðustu tveimur leikjum, fyrst í 2-1 tapi gegn Stjörnunni og svo í 3-2 tapi gegn Þrótti. „Ég veit ekki alveg hvað gerðist í síðustu leikjum, við vorum að skora og mér fannst við gera fínt varnarlega. Ég vildi að ég hafði svarið við því, hvað fór úrskeiðis, en við erum allavega allar klárar í kvöld og staðráðnar í því að fagna titlinum á Kópavogsvelli“ sagði markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar í samtali við Vísi. Þetta er óvenjuleg staða fyrir Breiðablik, sem hafði aðeins tapað einum leik í allt sumar. „Klárlega, ég man ekki hvenær maður tapaði síðast tveimur leikjum í röð með Breiðablik. En það segir manni bara að deildin er gríðarlega sterk, maður þarf að mæta í alla leiki og gera sitt besta.“ Þétt prógramm Næstu tvo miðvikudaga mun Breiðablik spila umspilseinvígi gegn Spartak frá Serbíu upp á sæti í Evrópubikarnum. Þess á milli mætir liðið Val og spilar svo lokaleik tímabilsins við FH laugardaginn 18. október. „Við höfum í rauninni mjög lítið talað um Evrópukeppnina en það væri mjög gott að klára titilinn og fara svo í Evrópukeppnina því það er þétt prógramm framundan. Við mætum Val, förum út og eigum svo leik á móti FH einum og hálfum sólarhring síðar. Þannig að það væri mjög erfitt fyrir okkur ef við klárum þetta ekki í kvöld, en ég trúi ekki öðru en að við gerum það… Það eru allir mjög pirraðir eftir síðustu tvo leiki þannig að já, ég trúi ekki öðru en að við mætum stemmdar.“ Verður ekki auðvelt Víkingur verður ekki auðvelt verkefni, liðið sem var í fallbaráttu framan af sumri hefur verið á ótrúlegu flugi og unnið sex af síðustu sjö leikjum. „Þær eru búnir að vera á þvílíku áhlaupi, eru að spila vel og skora mikið, þannig að þetta verður ótrúlega erfiður leikur.“
Besta deild kvenna Breiðablik Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira