Fannst Þórsarar og Lárus þurfa frí frá hvor öðrum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. október 2025 15:02 Lárus Jónsson gerði Þór Þ. að Íslandsmeisturum 2021. vísir/jón gautur Farsælast hefði verið ef leiðir hefðu skilið hjá Þór Þ. og Lárusi Jónssyni eftir síðasta tímabil. Þetta er mat Benedikts Guðmundssonar, sérfræðings Bónus Körfuboltakvölds.
Lárus hefur þjálfað Þór frá 2020 og gerði liðið að Íslandsmeisturum á fyrsta tímabili. Á síðasta tímabili lentu Þórsarar í 10. sæti Bónus deildarinnar og komust ekki í úrslitakeppnina í fyrsta sinn í átta ár. Lárus var orðaður við önnur félög í sumar, meðal annars Keflavík, en verður áfram við stjórnvölinn hjá Þór. Benedikt segir að Þórsarar geti ekkert slakað á í vetur, annars gæti farið illa og liðið hreinlega fallið. „Þórsararnir mæta ekkert í þetta mót og þurfa ekkert að pæla í að þeir séu ekki að fara að falla. Fyrsta markmið hjá þeim er bara að halda sér uppi. Þetta eru rosalegar margar breytingar á liðinu,“ sagði Benedikt í upphitunarþætti Bónus Körfuboltakvölds. Klippa: Bónus Körfuboltakvöld - Umræða um Þór Þ. og Lárus Að mati Benedikts hefðu Lárus og Þórsarar sennilega átt að slíta samstarfi sínu í sumar. „Mér fannst vera komin einhver þreyta í þetta Þórslið. Maður sá ekki alveg neistann sem hefur verið í þessu liði undanfarin ár. Þannig að mér, þar sem ég fæ nú greitt fyrir að segja mínar skoðanir, fannst Þórsararnir þurfa breytingu á þjálfara og fannst Lalli, þessi frábæri þjálfari, þurfa annað krefjandi verkefni,“ sagði Benedikt. „Ég held að það hafi verið „win-win“ fyrir báða aðila en það getur verið að ég hafi kolrangt fyrir mér. En mér sýndist það á öllu en svo er kannski endurnýjun á liðinu og þessi neisti kemur aftur.“ Umræðuna úr Bónus Körfuboltakvöldi má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Þór sækir nýliða ÍA heim í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland.
Bónus-deild karla Þór Þorlákshöfn Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira