Slydduél norðantil en þurrt og bjart sunnan heiða Atli Ísleifsson skrifar 18. september 2025 08:12 Hiti á landinu verður tvö til tíu stig yfir daginn, mildast allra syðst, en víða líkur á næturfrosti. Vísir/Vilhelm Hæð yfir Grænlandi og lægðasvæði austur af landinu beina svalri norðlægri átt til landsins og verður víða kaldi eða strekkingur í dag.
Á vef Veðurstofunnar segir að á norðanverðu landinu megi búast við einhverjum skúrum eða slydduéljum, en snjóéljum á heiðum, og um miðjan dag bæti í úrkomu um tíma. Sunnan heiða verður hins vegar yfirleitt þurrt og bjart veður. Hiti tvö til tíu stig yfir daginn, mildast allra syðst, en víða líkur á næturfrosti. „Keimlíkt veður á morgun, en þó bætir heldur í vind austast á landinu og sumar spár gera ráð fyrir samfelldri úrkomu þar fyrri part dags. Hægari vindur á laugardag og léttir til fyrir norðan, en stíf norðvestanátt austantil fram eftir degi með lítilsháttar úrkomu. Um kvöldið snýst svo í vestlæga átt og á sunnudag er útlit fyrir að það hlýni með vætu víða um land,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðan og norðvestan 8-15 m/s, hvassast austanlands. Skúrir eða él á Norður- og Austurlandi, annars bjart að mestu. Hiti 1 til 8 stig, en allvíða næturfrost. Á laugardag: Norðvestan og norðan 3-10 og bjart með köflum, en 10-15 austanlands og dálitlar skúrir eða slydduél fram eftir degi. Heldur hlýnandi. Vestan 5-13 um kvöldið og þykknar upp um landið vestanvert. Á sunnudag: Vestan og suðvestan 8-13 og rigning með köflum. Hiti 4 til 11 stig. Á mánudag (haustjafndægur): Breytileg átt og stöku skúrir. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Suðlæg átt og rigning með köflum, en þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 7 til 12 stig. Á miðvikudag: Breytileg átt og líkur á vætu víða um land.
Veður Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Rigning og skúrir víða um land Bætir í úrkomu eftir hádegi Spáð hlýju veðri norðaustantil Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Sjá meira