Ágúst strax kominn með titil hjá Álaborg Sindri Sverrisson skrifar 24. ágúst 2025 15:50 Ágúst Elí Björgvinsson hugsaði sig ekki tvisvar um þegar Aalborg vildi fá hann til sín. Aalborg Handbold Ágúst Elí Björgvinsson vann í dag danska ofurbikarinn með liði Álaborgar og er því strax búinn að bæta titli á ferilskrána eftir óvænta komu til dönsku meistaranna.
Álaborg fékk Ágúst til sín að láni eftir að ljóst varð að goðsögnin Niklas Landin yrði frá keppni vegna hnémeiðsla. Hann var í leikmannahópnum gegn Skjern í ofurbikarnum í dag þegar Aalborg vann öruggan sigur, 35-29, eftir að hafa verið sjö mörkum yfir í hálfleik, 17-10. Á gúst kom þó lítið við sögu í leiknum því Fabian Norsten fékk að standa í marki Álaborgarliðsins nær allan leikinn. Miðað við tölfræðiskýrslu úr leiknum fékk Ágúst aðeins að fara inn á í einu vítakasti. Norsten var með 30,77% markvörslu því hann varði 12 af 39 skotum sem hann fékk á sig. Þar af fóru þrjú víti í markið, rétt eins og eina vítið sem Ágúst fékk tækifæri til að verja. Ágúst er þrítugur og þekkir vel dönsku deildina. Hann hefur spilað þar síðan 2020, fyrst með KIF Kolding og svo með Ribe-Esbjerg frá 2022. Hann fór fyrst út í atvinnumennsku árið 2018 eftir að hafa spilað áður með FH. Thomas Arnoldsen varð markahæstur hjá Álaborg í dag með 9 mörk og Buster Juul skoraði sjö, þar af sex af vítalínunni. Hjá Skjern var Jon Lindenchrone markahæstur með átta mörk, þar af fjögur af vítalínunni, og Jakob Rasmussen skoraði jsö.
Danski handboltinn Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira