Viljum ekki leikmenn sem vilja ekki Spurs Valur Páll Eiríksson skrifar 22. ágúst 2025 16:17 Thomas Frank vildi ekki Eze, fyrst Eze vildi ekki Spurs. Getty/Luke Walker Thomas Frank, stjóri Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, segist ekki vilja fá leikmenn til liðsins sem ekki vilja koma. Tottenham horfði á eftir Eberechi Eze í hendur erkifjenda sinna og granna í Arsenal.
Frank sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag í aðdraganda leiks Tottenham um helgina við Manchester City. Hann var þar spurður út í Eze sem virtist á leið til Tottenham, þar til Arsenal steig inn. „Almennt vil ég ekki fá neina leikmenn sem vilja sjálfir ekki koma til félagsins og hafa þetta frábæra merki á bringunni. Við viljum þá ekki hér og ég er viss um að stuðningsmenn félagsins eru því sammála,“ sagði Frank á blaðamannafundi í dag. Tottenham vann góðan 3-0 sigur á Burnley í fyrstu umferð deildarinnar en liðsins bíður strembið verkefni er það sækir City heim á Etihad-völlinn klukkan 11:30 á morgun. Liðið reyndi að fá sóknartengiliðinn Morgan Gibbs-White í sumar en sá framlengdi við Nottingham Forest. Eze var næstur á listanum en það gekk ekki heldur. Ofan á það meiddist James Maddison, sem leikur svipaða stöðu á vellinum, illa á dögunum og Spurs því fámennir framarlega á vellinum. Tottenham leikur í Meistaradeild Evrópu í vetur vegna sigursins í Evrópudeildinni í sumar. Leikur Manchester City og Tottenham er klukkan 11:30 á morgun og verður sýndur beint á Sýn Sport, líkt og allir aðrir leikir í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Fótbolti Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Fótbolti Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Golf Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Fótbolti Dagskráin í dag: Víkingur mætir Skaganum og Opna breska klárast Sport Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Fyrrverandi stjórnarmaður Newcastle kaupir hlut í West Ham Fótbolti NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Körfubolti Fleiri fréttir Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Sjá meira