Norðlæg átt og víðast hvar væta Atli Ísleifsson skrifar 18. ágúst 2025 07:10 Hlýtt hefur verið víða á landinu síðustu daga. Um næstu helgi taka við lægðir með hvössu og vætusömu veðri. Vísir/Anton Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri eða breytilegri átt í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu. Líkur eru á dálítilli rigningu eða súld á norðanverðu landinu, en að styttir upp síðdegis.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði þurrt að kalla sunnanlands framan af degi, en dálítil væta þar síðdegis. Hiti verður á bilinu níu til sextán stig og hlýjast suðvestantil. Næstu daga stýrir víðáttumikil hæð veðrinu með hægum vindum, úrkomulítlu og mildu veðri, en á föstudag taka lægðar við valdataumunum með hvössu og vætusömu veðri. Á morgun verður vestlæg át 3-8 m/s. Skýjað og dálíti væta á víð og dreif, en þurrt að mestu fyrir austan. Hiti 12 til 17 stig. Spákort fyrir klukkan 15.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Hæg suðvestlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og sums staðar lítilsháttar væta. Hiti 12 til 19 stig, hlýjast norðaustantil. Á miðvikudag: Norðvestan 5-10 m/s með norðausturströndinni, en annars hægviðri. Yfirleitt léttskýjað, en sums staðar þokubakkar við sjávarsíðuna. Hita 12 til 18 stig. Á fimmtudag: Hægviðri, skýjað og dálítil væta á víð og dreif, en bjart að mestu fyrir austan. Hiti 12 til 17 stig. Á föstudag: Ákveðin suðaustanátt og rigning á sunnan- og vestanverðu landinu, en hægari og þurrt að kalla norðan- og austantil. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Suðlæg átt og dálítil rigning eða súld, en bjart að mestu norðanlands. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á sunnudag: Útlit fyrir suðaustanátt. Rigning víða um land, einkum sunnantil, en léttskýjað norðaustantil. Hlýtt í veðri.
Veður Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Sjá meira