Kári Kristján spilar aldrei aftur fyrir ÍBV Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2025 08:06 Kári Kristján Kristjánsson hefur klæðst ÍBV treyjunni í síðasta skiptið. vísir/Hulda Margrét Eyjagoðsögnin og einn farsælasti leikmaður ÍBV í gegnum tíðina náði ekki samkomulagi við ÍBV um nýjan samning. Ferill hans er líklega á enda.
Kári Kristján var í viðræðum við ÍBV síðan í maí en þeim lauk án samnings í síðustu viku. Kári segir frá þessu í hlaðvarpsþættinum Handkastið en framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV, Þorlákur Sigurjónsson hafði samband við línumanninn símleiðis og tilkynnti honum það að Kári fengi ekki samning við félagið. Kári segir að þeir hafi náð munnlegu samkomulagi um samning fyrr í sumar. Kári sagði í viðtali við Handkastið í byrjun júlí mánaðar að hann stefndi á að halda ferlinum áfram þrátt fyrir veikindi sem hann glímdi við fyrr á þessu ári sem gerðu það að verkum að hann gat ekki leikið nema einn leik með ÍBV eftir áramót. Þessar fréttir þýða að Kári mun væntanlega leggja handboltaskóna á hilluna en í fyrrnefndu spjalli sagði Kári afar litlar líkur á því að hann spili handbolta aftur. Þetta eru tímamót fyrir ÍBV en Erlingur Richardsson er nýlega tekinn aftur við ÍBV liðinu. Kári Kristján verður 41 árs í október en hann hefur spilað með ÍBV í tíu ár síðan hann kom þangað aftur. Kári byrjaði feril sinn í Eyjum en sló í gegnum sem leikmaður Hauka áður en hann fór út í atvinnumennsku í Sviss, Þýskalandi og Danmörku. Hann spilaði í eitt tímabil með Val eftir að hann kom heim en hefur síðan verið í ÍBV. Kári hefur unnið tvo Íslandsmeistaratitla og tvo bikarmeistaratitla með ÍBV.
Olís-deild karla ÍBV Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Sjá meira