Veður

Fjögurra daga bongóblíða í vændum

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Ef allt gengur eftir verður svona um að litast í Nauthólsvík næstu daga. Myndin er tekin í bongóblíðunni í maí. 
Ef allt gengur eftir verður svona um að litast í Nauthólsvík næstu daga. Myndin er tekin í bongóblíðunni í maí.  Vísir/Anton Brink

Sigurður Þ. Ragnarsson, eða Siggi Stormur veðurfræðingur, segir fjögurra daga bongóblíðu í vændum á stærstum hluta landsins. Hann spáir þó blautum þjóðhátíðardegi en segir ekkert fast í hendi. 

Samkvæmt staðarspám Veðurstofunnar má búast við allt að sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu síðdegis á morgun. „Þegar þið talið um sautján gráður, ég held það verði um átján til 22 gráður þar sem hlýjast verður,“ sagði Sigurður í Reykjavík Síðdegis í dag. 

Á laugardaginn verði hlýjast í uppsveitum Suðurlands. Svalast verði á Austurlandi og Austfjörðum, þar sem lægð frá Færeyjum rembist við að landa hæðinni austan- og suðaustan til. 

„En ef við horfum á meginhluta landsins, og þá sérstaklega suðurhluta og Vesturland, þá erum við að tala um fjögurra daga bongóblíðu, það er ekkert öðruvísi. Og jafnvel framhald á hvað hitann varðar.“

Þjóðhátíðardagurinn ekki jafn spennandi

Þrátt fyrir fjögurra daga veisluna sem Sigurður segir fram undan eru horfurnar ekki alveg jafn góðar í tengslum við þriðjudaginn 17. júní. 

„Þegar forsetinn okkar ætlar að færa okkur tíðindin á Austurvelli, þá gæti regnhlífin bjargað miklu. Og mér sýnist að 17. júní verði blautur að þessu sinni, sér í lagi sunnan- og vestan til. Þá er lægðin að hafa þau áhrif að hún nær að hrekja hæðina,“ segir Sigurður. Spáin geti þó breyst. 

Þó séu horfur fyrir þurrum 17. júní á norðanverðu landinu, sér í lagi á Norðausturlandi. Sigurður lofar jafnframt tveggja stafa hitatölum um allt land á þjóðhátíðardaginn. 

Allur er varinn góður, og Siggi, sem lært hefur að lofa ekki upp í ermina á sér, setur fyrirvara á spár næstu daga. 

„Nú er þetta annar kafli á þessu sumri sem beinir til okkar sólarveðri með hægum vindi. Það eina sem getur skemmt allar spár, ég ætla nú ekki að svekkja fólk, það er auðvitað þokan. Ef þokan gerir sig gildandi geta hitaspár snúist svolítið í höndunum á okkur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×