Tónlist

„Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Brynjar segir vináttu milli hans og Arons enn til staðar, þrátt fyrir að Aron hafi sagt skilið við ClubDub.
Brynjar segir vináttu milli hans og Arons enn til staðar, þrátt fyrir að Aron hafi sagt skilið við ClubDub.

Tónlistartvíeykið ClubDub er komið á endastöð, eftir sjö ára farsælt samstarf. Þeir Aron Kristinn Jónasson og Brynjar Barkarson náðu miklum vinsældum, bæði fyrir og eftir stofnun ClubDub. Brynjar segist enn vera vinur Arons, sem hafi talið að þeir ættu ekki að tjá sig um viðkvæm samfélagsmál. Brynjar hefur að undanförnu látið til sín taka í umræðu um útlendingamál.

Tónlistartvíeykið ClubDub kom fyrst fyrir sjónir almennings sumarið 2018, þegar sveitin gaf út plötuna Juice Menu, Vol.1, í samvinnu við taktsmíðatvíeykið Ra:tio. Platan naut gríðarlegra vinsælda en þar er að finna lög á borð við Clubbed Up, Drykk 3x og C3po. Í viðtölum hafa þeir Aron og Brynjar greint frá því að þeir hafi byrjað að semja tónlist undir eigin merkjum árið 2017.

Árið eftir gaf sveitin svo út stuttskífuna Tónlist, sem naut sambærilegra vinsælda og fyrsta útgáfa tvíeykisins. Stuttskífan clubdub ungir snillar fylgdi árið 2021, en nýjasta plata tvíeykisins kom út á síðasta ári og ber heitið Risa tilkynning.

Tvíeykið er með rúmlega 37 þúsund mánaðarlega hlustendur á streymisveitunni Spotify, þar sem þeirra vinsælasta lag er Eina sem ég vil frá árinu 2018. Lagið unnu þeir í samvinu við rapparann Aron Can. 

Hófst allt í Verzló

Þrátt fyrir að vinsældir Arons og Brynjars undir merkjum ClubDub hafi komið til árið 2018 nær ferill þeirra í popptónlist lengra aftur í tímann. Báðir gengu þeir í Verzlunarskóla Íslands, þar sem þeir voru meðlimir í myndbandanefndinni 12:00, sem stóð að sketsa- og tónlistargerð. 

Lögin sem þeir félagar gáfu út þar nutu þónokkurra vinsælda, og rökuðu inn hundruðum þúsunda áhorfa á YouTube og öðrum eins fjölda hlustana á Spotify.

Marga fjöruna sopið fyrir ferilinn

Þrátt fyrir að hafa notið nokkurrar hylli á tíma sínum í Verzló, bæði innan veggja skólans og utan, kláruðu Aron og Brynjar nám sitt ekki þar. Aroni var tímabundið vikið úr skólanum haustið 2014, þá á síðasta ári, fyrir að neyta áfengis innan veggja skólans fyrir skólaferð til Ítalíu.

Báðum var þeim svo endanlega vikið úr skólanum í desember sama ár, fyrir svindl í jólaprófum. Aron lauk stúdentsprófi í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ og Brynjar í Menntaskólanum í Kópavogi.

„Maður hélt smá að lífið væri bara búið,“ sagði Aron í Einkalífinu á Vísi snemma árs 2019, þegar þeir félagar voru til viðtals um velgengni ClubDub, sem þá var nokkuð ný af nálinni.

„Fyrir mitt leyti þá var þetta mikill vendipunktur í mínum lífi. Annað hvort þurfti maður að rífa sig í gang eða sökkva enn dýpra. Ef við hefðum ekki fengið þetta spark í rassinn, þá hefðum við verið enn þá klikkaðri en við erum. Þegar maður er í Verzló og er í 12:00 þá heldur maður að maður sé almáttugur,“ sagði Aron í viðtalinu.

Eftir framhaldsskóla fóru þeir sem leið lá í háskóla, nánar til tekinn Háskólann í Reykjavík. Þeir skiluðu báðir lokaverkefnum til bakklárgráðu árið 2020, Brynjar í tölvunarfræðideild en Aron í viðskiptafræðideild. Náminu sinntu þeir samhliða störfum sínum sem tónlistarmenn. 

Þeir hafa undanfarin ár haft nóg að gera og troðið upp á mörgum af stærstu viðburðum landsins, svo sem Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, Októberfest og víðar. 

Árið 2019 kom út heimildarmynd um ClubDub, sem hét einfaldlega ClubDub the Movie. Upp á íslensku væri það sennilega ClubDub myndin. Myndin sýnir frá daglegu lífi þeirra haustið 2018, rétt eftir að sveitin fór á flug með sína fyrstu plötu. 

Þar ræðir Brynjar einnig um lýtaaðgerð á nefi sem hann fór í árið á undan, auk þess sem rætt er við vini þeirra og ættingja til að öðlast betri innsýn inn í hugarheim þessara vinsælu tónlistarmanna.

Umræða um útlendingamál vegið þungt

Eftir sjö ár af velgengni virðist ClubDub nú komið á endastöð. Aron birti í gær stutta færslu á Instagram. Með hvítum stöfum á svörtum bakgrunni skrifaði hann einfaldlega: „Ég er hættur í ClubDub. Ást og friður.“ 

Fréttastofa hefur hvorki náð tali af Aroni eða Brynjari frá því að færslan birtist í gær.

Brynjar hefur að undanförnu verið fyrirferðarmikill í umræðu um útlendingamál hér á landi. Hann var meðal ræðumanna á umdeildum mótmælum á Austurvelli síðastliðinn laugardag.

Brynjar flytur hér ræðu á mótmælunum síðastliðinn laugardag.Vísir/Viktor Freyr

Hann hefur einnig lýst innflytjendum sem aðhyllast íslam sem „blóðsugum“ sem séu komnar til Íslands til þess að „sjúga kerfið þurrt, nauðga og rífa kjaft“.

„Auðvitað hafa búið hér múslimar lengi og aðlagast og bætt samfélagið og þau fá ekkert nema ást. Það er til gott fólk allsstaðar, í öllum hópum. En hlutfallið er ekki nógu gott til að við getum haldið áfram með þessa útlendingastefnu hér í Evrópu. Punktur,“ skrifaði Brynjar í hringrásarfærslu á Instagram í síðasta mánuði.

„Okkur var ekkert cancelað“

Í gær tjáði Brynjar sig um yfirlýsingu Arons. Það gerði hann í streymi þar sem hann spilaði tölvuleiki og spjallaði við áhorfendur. 

„Ef þið voruð að spá í ClubDub. Hvort ég sé núna einn í ClubDub. Já,“ sagði Brynjar meðal annars.

Hann sagði Aron hafa „spáð fyrir því að maður mætti ekki vera tónlistarmaður og tjá sig um eitthvað, eða lýsa yfir áhyggjum af einhverju sem snýr að málefnum í landinu.“

„Ég sagði honum að vera ekkert of viss. Kom síðan í ljós að okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur í raun. En ég og Aron erum góðir sko, jú,jú,“ sagði Brynjar. Þó hefur komið fram að tveir grunnskólar hafi afbókað ClubDub á böll hjá sér vegna orðræðu Brynjars. Þá hafði verið greint frá því að sveitin kæmi fram á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ár, en á vefsíðu hátíðarinnar er nú ekkert að finna sem bendir til þess.

Hann sagði einnig að enn væri kært á milli hans og Arons, vináttan væri til staðar.

„Aron er að eignast barn og hann er að fara í fæðingarorlof. Það var hvort eð er að fara að vera eitthvað ákveðið frí. Hann var ekki alltaf að fara að vera giggandi,“ sagði Brynjar.

Þrátt fyrir það hafi honum þótt óþarfi hjá Aroni að taka fram að hann væri hættur í ClubDub.

„Skrýtið smá, að taka þessa afstöðu. Bara óþarfi. Ókei, hættum þá bara að gigga skilurðu,“ sagði Brynjar. 

Hvorki Aron né Brynjar hafa svarað viðtalsbeiðnum fréttastofu í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.