Skoðun

Ójafnvægið sem heimurinn býr við – og skellur á Bakka

Erna Bjarnadóttir skrifar

Undirliggjandi ójafnvægi í alþjóðaviðskiptum hefur á síðustu áratugum orðið kerfisbundið. Afleiðingarnar eru ekki lengur aðeins efnahagslegar – þær hafa sífellt skýrari pólitísk áhrif.

Þessi þróun birtist í viðvarandi hallarekstri stórvelda, viðskiptadeilum og spennu í aðfangakeðjum. Í grein sem birtist í Klassekampen 21. maí 2025 dregur norski hagfræðingurinn Anton Smedshaug fram þessar brotalamir – og varpar fram spurningunni hvort alþjóðaviðskiptakerfið byggi raunverulega á stoðum eða einungis trausti sem er farið að rofna.

Viðvarandi viðskiptahalli og forréttindastaða Bandaríkjanna

Bandaríska hagkerfið hefur um áratugaskeið verið rekið með viðvarandi viðskiptahalla. Slíkt hefði verið ómögulegt í flestum öðrum ríkjum, en Bandaríkin njóta sérstöðu vegna stöðu Bandaríkjadals sem er gjaldmiðill alþjóðaviðskipta. Þessi staða gerir þeim kleift að fjármagna hallann með prentun eigin gjaldmiðils – án þess að mæta þeim afleiðingum sem önnur ríki þurfa að standa undir.

Afleiðingarnar eru þó geigvænlegar þegar á hóminn er komið: ósjálfbært neyslumynstur hefur byggst upp, innlend framleiðsla dregst saman og alþjóðlegt ójafnvægi í viðskiptum magnast upp með víðtækum áhrifum.

Viðskiptaafgangur og undirliggjandi spenna

Smedshaug bendir jafnframt á að ábyrgðin liggi ekki aðeins hjá ríkjum með viðskiptahalla. Ríki eins og Kína, Þýskaland og Japan, sem halda uppi viðvarandi viðskiptaafgangi og byggja sinn efnahagsvöxt á stöðugri eftirspurn frá öðrum löndum sem sjálf eru rekin með viðskiptahalla – og gera þannig ójafnvægið varanlegt. Þetta fyrirkomulag er ekki sjálfbært – það hvílir á varanlegu ójafnvægi sem stuðlar að viðskiptadeilum, gengisóstöðugleika og pólitískri spennu.

Valdahlutföll og efnislegur grunnur – sem hverfur

Vesturlönd hafa í dag mjög takmarkað aðgengi að málmum og öðrum hráefnum sem áður mynduðu grunn efnahagslegs og hernaðarlegs styrks. Í stað þess að byggja á efnislegum auðlindum, byggist völd nú í vaxandi mæli á fjármálakerfum sem halda sér uppi með skuldasöfnun og trausti á gjaldmiðlum sem ekki hafa beina tengingu við raunveruleg verðmæti.

Þar sem alþjóðaviðskiptakerfið hvílir á trausti fremur en efnislegum stoðum, verður það viðkvæmt fyrir óróa ef trúin brestur – og það getur leitt til víðtækrar óvissu og óstöðugleika í samskiptum ríkja. Undir slíkum kringumstæðum grípa stórveldi gjarnan til skammtímaráðstafana í stað kerfisbreytinga. Hér er nærtækasta dæmið einmitt að finna í skammtalækningum Bandaríkjaforseta nú um stundir – þar sem tollar, þrýstingur á bandalagsríki og úrsagnir úr alþjóðasamstarfi eru notaðar í stað þess að ráðast að rótum vandans.

Græn umbreyting – með hráefnaskorti að baki

Orkuskipti og græn umbreyting – hvort sem þau snúast um rafbíla, sólarrafhlöður eða vindmyllur – krefjast aðgangs að hráefnum eins og lithium, kobolti, sjaldgæfum jarðmálmum og hágæða málmblöndum. Slíkar auðlindir eru að mestu leyti staðsettar utan Vesturlanda, og eru undir stjórn ríkja sem beita þeim í auknum mæli sem pólitískum áhrifatækjum. Þetta veldur því að jafnvel lönd með hreina orku og aðstöðu til framleiðslu – eins og Ísland – verða háð dýrum og ótryggum aðföngum erlendis frá.

Og þá komum við að Bakka

Stöðvun rekstrar PC Silicon á Bakka við Húsavík er áþreifanlegt dæmi um það hvernig óstöðugleiki í alþjóðaviðskiptum smitast beint inn í íslenskan veruleika. Fyrirtækið framleiddi kísil, mikilvægt hráefni í framleiðslu á sérhæfðu áli fyrir rafbíla og orkukerfi sem byggja á endurnýjanlegum orkugjöfum – m.a. fyrir rafhlöður og sólarsellur. Þrátt fyrir að Ísland bjóði upp á hagkvæma, endurnýjanlega orku og trausta innviði, reyndist erfitt að halda úti arðbærri starfsemi við breytilegar markaðsaðstæður og samkeppni á alþjóðavísu.

Ísland, auðlindir og aðfangakeðjur

Fyrir Ísland skiptir ekki aðeins máli hvernig við nýtum okkar auðlindir – heldur einnig hvernig við staðsetjum okkur í heimi þar sem aðgangur að hráefnum, tækni og viðskiptatengslum mótast af valdatafli á alþjóðavísu. Þeir sem ætla sér að leiða orkuskipti og græna uppbyggingu þurfa ekki bara orku – heldur einnig að tryggja stöðu innan aðfangakeðja sem eru bæði óstöðugar og pólitískt viðkvæmar.

Í slíku samhengi er ekki nóg að ræða tækifæri innan einstakra samninga eða markaða. Spurningin er sú: hvernig tryggjum við efnislegan grunn sjálfbærrar framtíðar?

Höfundur er hagfræðingur og húsmóðir í Hveragerði




Skoðun

Sjá meira


×