Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Atli Ísleifsson skrifar 28. maí 2025 12:33 Frá pallborðsumræðum fyrr í dag. Óli Már Svavarsson Sparisjóðurinn Indó mældist hæst fyrirtækja í Sjálfbærniásnum en alls fengu fimmtán fyrirtæki viðurkenningu á viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins í Gestastofu Elliðaárstöðvar í dag. Þetta er í annað sinn sem niðurstöður Sjálfbærniássins eru kynntar, en mælikvarðinn byggir á mati almennings á frammistöðu íslenskra fyrirtækja í sjálfbærni. Í tilkynningu segir að sjálfbærni nái í dag langt út fyrir umhverfismál. „Hún snertir stjórnarhætti, mannauð, upplýsingagjöf, jafnrétti, samfélagsþjónustu, ábyrga fjármálastjórnun, tækni og nýsköpun – og ekki síst traust og gagnsæi. Þess vegna taka fjölbreytt fyrirtæki þátt í verkefninu; úr ólíkum atvinnugreinum en með sameiginlega sýn á samfélagslega ábyrgð. Sjálfbærni er ekki lengur sérsvið – heldur heildræn nálgun á starfsemi og tengsl við samfélagið. Tryggvi Björn Davíðsson, framkvæmdastjóri indó og einn af stofnendum.Óli Már Svavarsson Mælingin er svar við vaxandi kröfum viðskiptavina og annarra hagaðila um aukna ábyrgð fyrirtækja. Sjálfbærniásinn er samstarfsverkefni Prósents, Langbrókar og Stjórnvísi, með það að markmiði að efla meðvitund og hvetja til framfara í sjálfbærni. Að þessu sinni mælist indó efst allra fyrirtækja samkvæmt niðurstöðum almenningskönnunar.“ Á viðurkenningarhátíðinni kynnti Trausti Heiðar Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents, einnig valdar niðurstöður úr íslensku kynslóðamælingunni 2025: 53% einstaklinga telja að áhersla fyrirtækja á sjálfbærni hafi mjög eða frekar mikil áhrif á viðhorf þeirra. Hlutdeildin er hæst í aldurshópnum 18–24 ára: 57%. 40% þjóðarinnar eru líkleg til að sniðganga fyrirtæki sem ekki uppfylla kröfur þeirra um sjálfbærni. „Það er áhugavert að sjá skýrt afstöðu þjóðarinnar til sjálfbærnimála en 40% þjóðarinnar eru líkleg til að sniðganga fyrirtæki ef þau uppfylla ekki kröfur þeirra um samfélagslega ábyrgð og sjálfbærni. Með þessari mælingu erum við að varpa ljósi á það hvernig almenningur upplifir áherslur fyrirtækja í sjálfbærnimálum. Sjálfbærniásinn gefur þeim tækifæri til að sjá hvernig þau mælast í samanburði við önnur fyrirtæki og geta tekið upplýstar ákvarðanir um framhaldið. Jafnframt viljum við styrkja stöðu neytenda sem áhrifaaðila í þessari vegferð,“ er haft eftir Trausta Haraldssyni, framkvæmdastjóra Prósents. Markmið Sjálfbærniássins: Veita hlutlausar og samanburðarhæfar upplýsingar um viðhorf almennings til þess hvernig íslensk fyrirtæki standa sig í sjálfbærnimálum. Hvetja fyrirtæki til að leggja meiri áherslu á sjálfbærni og miðla aðgerðum sínum með skýrari hætti. Auka vitund neytenda um mikilvægi sjálfbærni og hvernig þeir geta haft áhrif með eigin kauphegðun. Lykilmælikvarðar Ég er ánæg(ð/ður/t) með framlag [fyrirtækis] til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Jörðin [Fyrirtækið] leitast við að lágmarka sóun og losun við framleiðslu og afhendingu á vöru/þjónustu. Fólkið [Fyrirtækið] hugar að velferð viðskiptavina sinna við þróun og afhendingu á vörum sínum og þjónustu. Stjórnarhættir Stjórnendur [fyrirtækis] eru meðvitaðir um að þeir verði að grípa til aðgerða til að auka sjálfbærni. Velsæld [Fyrirtækið] grípur til aðgerða til að vera samfélagslega ábyrgt fyrirtæki. Kvarðinn sem notast var við er á bilinu 0 til 100 stig þar sem 0-49 stig er talin slæm frammistaða, 50-59 stig meðalgóð frammistaða, 60-69 stig er góð frammistaða og 70 stig og yfir er afbragðsgóð frammistaða. Sá markaður sem fékk heilt yfir flest stig var flugfélög og sá markaður sem fékk heilt yfir fæst stig var sjávarútvegsfyrirtæki. Heildarmeðaltal markaða. Stigalægsta fyrirtækið hlaut 35 stig af 100 mögulegum og stigahæsta fyrirtækið hlaut 85 stig. Það fyrirtæki sem hlaut flest stig allra mældra fyrirtækja er indó með 85 stig. Össur mældist með næsthæstu einkunn, 83 stig og Íslensk erfðagreining sem var sigurvegari Sjálfbærniássins 2024 með þriðju hæstu einkunnina, 79 stig. Um rannsóknina segir að hún hafi verið framkvæmd af rannsóknarfyrirtækinu Prósenti. „Framkvæmdatími var frá janúar til apríl 2025 og var um að ræða netkannanir sem voru sendar á könnunarhóp Prósents. Frá viðurkenningarhátíðinni í Elliðaárdal í dag. Óli Már Svavarsson Rannsóknarmódelið á bak við Sjálfbærniásinn Rannsóknarmódelið samanstendur af sex spurningum sem kanna viðhorf neytenda til frammistöðu fyrirtækja í sjálfbærnimálum. Módelið mælir þá 4 þætti sem The World Economic Forum telja að muni leiða heiminn á sjálfbærari stað. Þessir 4 þættir eru; jörðin, fólkið, stjórnarhættir og velsæld. Spurningar eru úr módeli sem þróað er og sannprófað af Qualtrics, byggt á 27.000 svörum frá 26 löndum og 16 mörkuðum,“ segir í tilkynningunni. Sjálfbærni Fjármálafyrirtæki Mest lesið „Ég hef aldrei spilað golf“ Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Fleiri fréttir Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós „Ég hef aldrei spilað golf“ Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Sjá meira
Markmið Sjálfbærniássins: Veita hlutlausar og samanburðarhæfar upplýsingar um viðhorf almennings til þess hvernig íslensk fyrirtæki standa sig í sjálfbærnimálum. Hvetja fyrirtæki til að leggja meiri áherslu á sjálfbærni og miðla aðgerðum sínum með skýrari hætti. Auka vitund neytenda um mikilvægi sjálfbærni og hvernig þeir geta haft áhrif með eigin kauphegðun. Lykilmælikvarðar Ég er ánæg(ð/ður/t) með framlag [fyrirtækis] til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Jörðin [Fyrirtækið] leitast við að lágmarka sóun og losun við framleiðslu og afhendingu á vöru/þjónustu. Fólkið [Fyrirtækið] hugar að velferð viðskiptavina sinna við þróun og afhendingu á vörum sínum og þjónustu. Stjórnarhættir Stjórnendur [fyrirtækis] eru meðvitaðir um að þeir verði að grípa til aðgerða til að auka sjálfbærni. Velsæld [Fyrirtækið] grípur til aðgerða til að vera samfélagslega ábyrgt fyrirtæki.
Sjálfbærni Fjármálafyrirtæki Mest lesið „Ég hef aldrei spilað golf“ Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Fleiri fréttir Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós „Ég hef aldrei spilað golf“ Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Sjá meira