Íslenski boltinn

Þeir bestu (1. sæti): Af­rekaði allt

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leikmaðurinn sem endaði í sæti 1.
Leikmaðurinn sem endaði í sæti 1. grafík/sara

Hér er farið yfir leikmanninn sem endaði í 1. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992.

1. Tryggvi Guðmundsson

  • Lið: ÍBV, KR, FH, Fylkir
  • Staða: Kantmaður
  • Fæðingarár: 1974
  • Íslandsmeistari: 1997, 2005, 2006, 2008, 2009
  • Bikarmeistari: 1994, 2007
  • Leikir: 241

  • Mörk: 131

  • Stoðsendingar: 73

  • Leikmaður ársins: 1997
  • Sex sinnum í liði ársins
  • Gullskór: 1997, 2005
  • Silfurskór: 1995
  • Bronsskór: 2008

Förum aðeins yfir afrekaskrá Tryggva Guðmundssonar. Fimm sinnum Íslandsmeistari, tvisvar sinnum bikarmeistari, enn handhafi metsins yfir flest mörk í sögu efstu deildar, var handhafi markametsins í 27 ár, kom með beinum hætti að 204 mörkum í efstu deild (sá eini sem hefur farið yfir tvö hundruð mörkin), einu sinni leikmaður ársins, einu sinni besti ungi leikmaðurinn, tvisvar sinnum markakóngur, einu sinni stoðsendingakóngur og annar tveggja (ásamt Guðmundi Steinssyni) sem hafa náð sex tíu marka tímabilum í efstu deild. Allt þetta þrátt fyrir að hafa spilað sjö ár, á besta aldri, erlendis.

Tryggvi Guðmundsson varð Íslandsmeistari með ÍBV 1997 og var nálægt því að endurtaka leikinn 2010.vísir/anton

Tryggvi lék sína fyrstu leiki í efstu deild 1992 en sló í gegn sumarið 1993. Þá skoraði hann tólf mörk fyrir ÍBV sem hélt sér uppi þökk sé frægu marki bjargvættarins Martins Eyjólfssonar gegn Fylki í lokaumferðinni. Tryggvi átti reyndar risastóran þátt í að Eyjamenn héldu sér uppi því hann skoraði þrennu í 2-9 sigri á Víkingum í næstsíðustu umferðinni. Sá stóri sigur gaf ÍBV tækifæri á að halda sér uppi með sigri á Fylki í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni.

Eftir eitt ár í KR þar sem Tryggvi varð bikarmeistari sneri hann aftur til Eyja 1995 og var besti leikmaður stórskemmtilegs liðs ÍBV sem endaði í 3. sæti. Tryggvi skoraði fjórtán mörk og átti Gullskóinn vísan áður en Arnar Gunnlaugsson kom til skjalanna. Tryggvi skoraði svo átta mörk og gaf sjö stoðsendingar sumarið 1996 þar sem ÍBV lenti í 4. sæti í deild og 2. sæti í bikar.

Tryggvi í bikarúrslitaleiknum gegn ÍA 1996.á sigurslóð

Eftir fimm ára sigurgöngu ÍA var komið að lyklaskiptum á toppnum 1997. ÍBV varð meistari í fyrsta sinn í átján ár og var hársbreidd frá því að vinna tvöfalt. Tryggvi skoraði nítján mörk, jafnaði markametið í efstu deild og var valinn leikmaður ársins. Hann var sérstaklega öflugur eftir því sem leið á tímabilið og skoraði ellefu mörk í síðustu sex leikjum ÍBV. Tryggvi skoraði þrennu á tíu síðustu mínútum gegn Val í 15. umferð og svo aftur þrennu þegar ÍBV tryggði sér titilinn með 5-1 sigri á Keflavík í næstsíðustu umferðinni.

Eftir sjö ár í atvinnumennsku sneri Tryggvi aftur til Íslands 2005 og gekk til liðs við Íslandsmeistara FH. Hann tók bara upp þráðinn þar sem frá var horfið 1997; varð Íslandsmeistari, skoraði sextán mörk og varð markakóngur. Tímabilið 2005 er eitt besta heimkomutímabil leikmanns í sögu efstu deildar og Tryggvi var lykilmaður í einu besta liði sem hefur spilað í deildinni hér heima.

FH varð aftur Íslandsmeistari 2006 en missti af Íslandsmeistaratitlinum 2007 þrátt fyrir átta mörk og sjö stoðsendingar Tryggva. Liðið varð hins vegar bikarmeistari í fyrsta sinn og endurheimti Íslandsmeistaratitilinn 2008 eftir baráttu við Keflavík. Tryggvi skoraði tólf mörk og var þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar. FH varð aftur Íslandsmeistari 2009, á síðasta tímabili Tryggva í Kaplakrika. Þá lék hann aðallega á miðjunni ásamt Davíð Þór Viðarssyni og Matthíasi Vilhjálmssyni og skilaði sjö mörkum.

Tryggvi varð fjórum sinnum Íslandsmeistari á fimm árum hjá FH.VÍSIR/VILHELM

Eftir þrettán ára útlegð fór Tryggvi heim í ÍBV fyrir tímabilið 2010 og við tók kannski aðdáunarverðasti kaflinn á ferli hans. Eyjamenn fengu aðeins 22 stig sem nýliðar 2009 en voru öllum að óvörum í baráttu um titilinn árið eftir. Tryggvi var stærsta ástæðan fyrir því og leiddi Eyjaliðið til tuttugu fleiri stiga en árið á undan og það átti möguleika á að verða Íslandsmeistari í lokaumferðinni.

Árið 2011 átti Tryggvi annað dúndurtímabil, skoraði tíu mörk og ÍBV veitti KR mesta samkeppni um titilinn þrátt fyrir að FH hafi endað í 2. sætinu. Tryggvi jafnaði markametið haustið 2011, sló það 2012 með skoti beint úr aukaspyrnu gegn Stjörnunni á Hásteinsvelli, og lauk svo ferlinum í efstu deild með Fylki 2013.

„Einhver albesti leikmaður sem hefur spilað í efstu deild,“ sagði Heimir Guðjónsson, fyrrverandi þjálfari Tryggva hjá FH, eitt sinn um Tryggva. Um það verður ekki deilt og atkvæðagreiðslan í þessari könnun sýnir það. Allir 25 sem tóku þátt í kosningunni voru allir með Tryggva á sínum lista. Níu voru með hann í efsta sæti, fjórir í 2. sæti og tveir í 3. sætinu.

Tryggvi var manna fremstur í að koma sér í færi og var sérstaklega lunkinn að koma sér fyrir á fjærstönginni þar sem hann skoraði mörg marka sinna. Eyjamaðurinn skoraði líka mörg glæsileg mörk með sínum góða vinstri fæti; inni í teig, fyrir utan teig, beint úr aukaspyrnum, með vippum, þrumuskotum og svo mætti áfram telja, og slatta af skallamörkum. Hann var líka skemmtilegur á velli, mikill keppnismaður og ein af stjörnunum í deildinni okkar. Afrekaskráin er líka glæsileg og metin, tölfræðin og titlarnir tala sínu máli.


Tengdar fréttir

Þeir bestu (4. sæti): Sigurvegarinn

Hér er farið yfir leikmanninn sem endaði í 4. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992.

Þeir bestu: Fylgt úr hlaði

Vísir gerðist stórhuga og ákvað að setja saman lista yfir sextíu bestu leikmenn efstu deildar karla frá 1992. Listinn yfir þessa sextíu leikmenn birtist á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×