Innlent

Stefnt að nýjum og glæsi­legum mið­bæ í Grundar­firði

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Grundarbæjarbær leitar nú eftir kauptilboðum í byggingarrétt á miðbæjarreit með góðu útsýni til eins frægasta fjalls í heimi, Kirkjufells eins og segir í auglýsingu vegna kauptilboðanna.
Grundarbæjarbær leitar nú eftir kauptilboðum í byggingarrétt á miðbæjarreit með góðu útsýni til eins frægasta fjalls í heimi, Kirkjufells eins og segir í auglýsingu vegna kauptilboðanna. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Mikill hugur er í bæjarstjórn Grundafjarðarbæjar og íbúum staðarins því nú er stefnt á að byggja upp glæsilegan miðbæ á staðnum. Í því skyni leitar bæjarfélagið nú eftir kauptilboðum í byggingarrétt á miðbæjarreit með góðu útsýni til eins frægasta fjalls í heimi, Kirkjufells eins og segir í auglýsingu vegna kauptilboðanna.

Grundarfjarðarbær ætlar sér stóra hluti með byggingu nýs miðbæs í miðbæjarreit bæjarfélagsins, sem er vel staðsettur í hjarta miðbæjarins á gatnamótum við Grundargötu, sem er þjóðleið um Snæfellsnes. Stærð lóðarinnar er um 2.500 fermetrar en um er að ræða fjórar samliggjandi lóðir á besta stað í bænum.

Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri veit allt um miðbæjarmálið í Grundarfirði.

„Við erum að auglýsa lóðirnar í því skyni að það verði byggð upp miðbæjarþjónusta, þar að segja hús, sem að geta hýst allskonar þjónustu, verslun og síðan íbúðir í bland. Og það er farið aðra leið en við erum kannski vön að fara, að auglýsa bara einfaldlega lóðir og vonast til að einhver sæki um því við erum líka að halda fram þeim gæðum, sem hér er að finna,” segir Björg.

Bæjarstjórinn segist hafa tröllatrú á verkefninu í ljósi þess hvað Snæfellsnes er vinsæll staður, ekki síst hjá ferðafólki og að það sé mjög öflug ferðaþjónusta á svæðinu.

„Já og við vitum það að Snæfellsnes á mjög mikið inni og við finnum fyrir auknum þunga og áhuga á Snæfellsnesi, þannig að þetta er þá líka okkar leið til að segja að þetta helst í hendur við aðra uppbyggingu eins og beint fyrir ferðaþjónustu,” segir Björg.

Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar. Tilboð í lóðirnar verða opnuð fimmtudaginn 5. júní næstkomandi.Aðsend

En finnur þú á íbúum í Grundarfirði að þeir séu stemmdir fyrir þessu og vilji fá miðbæ?

„Já, við erum auðvitað að vinna eftir aðalskipulagi og í þeirri vinnu á sínum tíma fyrir fyrir 2020 eða í kringum 2020 þá kalla íbúar eftir huggulegum miðbæ og uppbyggingu á miðbæ, eitthvað, sem segir manni að hér sé hjarta bæjarins og þar sé huggulegt og gott að vera,” segir Björg bæjarstjóri.

Hér má sjá nokkur kennileiti í Grundarfirði.Aðsend

Heimasíða bæjarfélagsins




Fleiri fréttir

Sjá meira


×