Innlent

Neyðar­á­stand hjá Villiköttum sem senda frá sér á­kall

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
220 kettir eru í húsnæði Villikatta.
220 kettir eru í húsnæði Villikatta. vísir

Dýraverndunarfélagið Villikettir leitar nú logandi ljósi að nýjum fósturheimilum sem geta veitt hræddum kisum öruggt húsaskjól. Fréttastofa kíkti í heimsókn í eitt af kisukotum þeirra í Hafnarfirði þar sem hvert herbergi innihélt fjölmargar kisur.

Í klippunni hér fyrir neðan má sjá ketti sem bráðvantar fósturheimili. Hálfgert neyðarástand ríkir hjá dýraverndunarfélaginu Villikettir og öll kot þeirra stútfull.

220 kettir víða um land

Yfir 220 kettir eru á skrá hjá félaginu í húsnæði víða um land og kemur brátt að því að ekki verði lengur hægt að bjarga villi- og vergangsköttum. Samtökin hafa því sent frá sér ákall og er biðlað til fólks að taka að sér kisur í fóstur.

Ásdís Erla Valdórsdóttir, kotstýra í Hafnarfirði, segir stöðuna sérstaklega slæma í ár þó að húsnæði þeirra fyllist á hverju ári.

„Þetta hefur ekki gerst svona snemma á árinu. Yfirleitt er það í júlí, ágúst sem er hápunkturinn hjá okkur. Núna er það í lok maí. Staðan er bara að eftir nokkra daga þá verðum við bara að segja nei. Við getum ekki tekið við kisum sem slasast, tekið inn villinga. Stundum er verið að skila kisum þar sem það hefur ekki gengið upp. Þannig að það er bara fullt.“

Talsvert fleiri nýir kettir á vergangi í ár

Ásdís minnir á að margt smátt geri eitt stórt.

„Við erum að fá styrki Það er verið að gefa okkur mat, bæli, pening upp í dýralæknakostnað, það fara náttúrulega allir til dýralæknis. Við þiggjum allt, helst fósturheimili.“

Hjá þeim eru meðal annars heimiliskettir sem eru án eigenda sökum andláts eða flutninga, villikettir sem hafa misst skjólsvæði sín vegna framkvæmda og vergangskettir sem hafa týnst.

Um 130 nýir kettir hafa verið skráðir frá áramótum sem eru 30 fleiri en á síðasta ári. Ásdís hvetur fólk til að örmerkja og gelda kettina sína.

„Eins og kettlingarnir eru rosalega sætir þá stækka þeir og fara að fjölga sér. Það er líka  óábyrgt að vera með hálfgerða kettlingamillu þar sem sama læðan er að eignast aftur og aftur kettlinga. Við erum með yfir 30 kettlinga og það eru fullt af kettlingum að fæðast, svo að já.. við erum búin.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×