Golf

Brjálaðist og gaf vellinum fokk­merki

Sindri Sverrisson skrifar
Shane Lowry var reiður í dag.
Shane Lowry var reiður í dag. Getty/Warren Little

Óhætt er að segja að Írinn Shane Lowry hafi orðið bálreiður á öðrum degi PGA-meistaramótsins í golfi í dag. „Til fjandans með þennan stað,“ öskraði kylfingurinn í bræði sinni á áttundu brautinni.

Lowry virtist vera að koma sér í fínt færi á fugli á áttundu brautinni en boltinn hans lenti hins vegar ofan í holu eftir annan bolta og því erfitt að slá hann.

Lowry fór fram á að mega taka boltann upp og láta hann falla, samkvæmt reglum um sokkinn bolta, en var meinað um það og brást ókvæða við. Hann sýndi Quail Hollow vellinum fokkmerkið og eftir höggið sitt sló hann aftur af krafti í grasið til að skemma völlinn.

Hann endaði á að fá skolla á holunni og það virðist ætla að kosta Lowry það að hann endi einu höggi fyrir neðan niðurskurðarlínuna og verði því ekki meira með um helgina.

Lowry lék hringinn í dag samtals á pari en hann fékk þrjá skolla og þrjá fugla. Hann lék á +2 höggum í gær og er þegar þetta er skrifað í 75. sæti ásamt fleiri kylfingum en niðurskurðarlínan er í +1.

Vegas enn efstur

Ekki hafa allir kylfingar lokið leik í dag en efstur er Venesúelabúinn Jhonattan Vegas sem átti svo magnaðan hring í gær, þegar hann lék á -7 höggum, en hann lék hringinn í dag á einu höggi undir pari og er því samtals á -8.

Staðan á mótinu

Næstir á eftir, þegar þetta er skrifað, eru Matthieu Pavon, Matt Fitzpatrick og Si Woo Kim á -6 höggum en Kim á tvær holur eftir.

Rory McIlroy er kominn upp í 38. sæti á -4 höggum í dag, og samtals -1 höggi, en á tvær holur eftir í dag.

PGA-meistaramótið er sýnt á Vodafone Sport og hefst bein útsending á morgun, laugardag, klukkan 18.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×