„Vona að þú sofir vel“ Jakob Bjarnar skrifar 2. maí 2025 14:23 Helga Seljan bárust skilaboð frá reikningi sem áður hefur verið notaður til að hafa í hótunum við hann. Hann segir þetta langt í frá þægilegt. vísir „Vona að þú sofir vel“. Þessi skilaboð bárust Helga Seljan blaðamanni á Messenger Facebook í kjölfar Kveiks-þáttar sem fjallaði um njósnir sem fyrirtækið PPP ehf. stóð fyrir að undirlagi Björgólfs Thors Björgólfssonar fjárfestis 2012.
Skilaboðin bárust frá reikningi eiginkonu Jóns Óttars Ólafssonar, sem hafði við annan mann staðið í njósnunum líkt og fram kemur í þættinum. Helgi segir að honum hafi áður borist skilaboð frá þessum sama reikningi til Helga. Það mál tengdist Samherja. Kjarninn, sem síðar rann saman við Stundina og varð að Heimildinni, greindi frá þeim en eiginkonan neitaði því að hafa sent skilaboðin. Jón Óttar gekkst síðar við því að hafa sent skilaboðin og bað Helga afsökunar. Yfirboðarar Helga á Ríkisútvarpinu, svo sem Stefán Eiríksson útvarpsstjóri, sem er fyrrverandi lögreglustjóri telur einsýnt að Jón Óttar sem fyrrverandi lögreglumaður viti mæta vel hvernig á að hóta undir rós. Þar á bæ er þessum skilaboðum ekki tekið létt að sögn Helga. Á RÚV eru skilaboðin túlkuð sem hótun „Nei, það gerir það enginn. Í ljósi sögunnar þá vita menn að bæði er þetta eitthvað sem hefur komið frá honum áður. Og það liggur líka fyrir hver tilgangurinn átti að vera á þeim tíma. Hann hefur gengist við því,“ segir Helgi í samtali við Vísi. „Menn geta auðvitað leikið sér að því, briddsspilarar uppi í Lögbergi, að þetta sé orðalag sem eigi ekki að káfa uppá neinn. En við vitum alveg að hann hefur gert þetta áður í þeim tilgangi. Ef hann hefur ekki skynsemi í að átta sig á því mættu þeir sem nú eru að borga reikninginn, hvort sem það er Björgólfur Thor eða Birgir Már (Ragnarsson) eða einhver annar, stíga inn og lána honum smá dómgreind.“ Helgi segir að ekki standi til að kæra þessi skilaboð. Hann vilji fyrst og fremst að þetta hætti. „Ég nenni ekki að láta þessar gusur ganga yfir mig öllu lengur.“ Hefur áður beðið Helga afsökunar á svipuðum skilaboðum Viðbrögðin við þættinum hafa verið mikil þó Helgi telji að Vilhjálmur Bjarnason fjárfestir og aðrir sem komu við sögu hafi fundist mest fyrir þeim. „Við höfum ekki náð tali af þeim sem þarna er fjallað um. Það var kannski fyrirsjáanlegt.“ Hér má sjá skjáskot af skilaboðunum eins og þau bárust Helga frá reikningi eiginkonu Jóns Óttars. Áður höfðu skilaboð frá þeim sama reikningi, eða 2020 borist Helga en þá í tengslum við Samherjamálið. Kveiksfólk hefur ekki náð að ræða málið við Jón Óttar en eins og Helgi bendir á voru þessi viðbrögð, skilaboð frá Facebook-reikningi konu hans, það sem frá honum kom. Þessi tilteknu skilaboð komu að kvöldi miðvikudags en þátturinn var sýndur á þriðjudagskvöldi. „Menn geta alveg lagt sinn skilning í skilaboðin en í ljósi þess að það eru ekki mörg ár síðan ég og Ingi Freyr Vilhjálmsson, fengum einmitt skilaboð frá þessum reikningi, frá Jóni Óttari, þá eru þetta hótanir. Hann gekkst við þeim þá og baðst afsökunar.“ Helgi segir að kona Jóns hafi brugðist við fréttum af skilaboðum, að hún hafi ekki skrifað þau þá þó skilaboðin bærust frá síðu hennar. „Þetta er náttúrlega sent til að hreyfa við fólki. Mér finnst það ekki í boði. Ef að hann, ég gef mér að þetta hafi verið hann en ekki konan hans, hefur eitthvað við þessa umfjöllun að athuga hefur hann allar leiðir til að tjá sig um hana. Ef hann vill ekki tala við mig, þá mína kollega.“ Þóra gengst við því að hafa sent skilaboðin Helgi segir að það þýði ekkert að kæra þetta og honum finnst ekki sem hann eigi að þurfa þess. Hann vill bara höfða til Jóns Óttars, eða þeirra sem gera hann út, að þetta sé ekki leiðin. En í ljósi sögunnar, fer um þig ískaldur hrollur? „Til þess er þetta gert og auðvitað stendur manni ekki á sama. Þetta er ekki þægilegt. En á móti, það er þægilegt að afgreiða þetta sem eitthvað kjánalegt. Helgi Seljan segir ekki í boði að fá skilaboð sem hæglega megi túlka sem hótun fyrir það eitt að fjalla um viðkvæm málefni.vísir/vilhelm Ég ber virðingu fyrir því og sýni því skilning að það er ekkert þægilegt að verða umfjöllunarefni um svona hluti alveg sama þó hægt sé að halda því fram að full ástæða hafi verið að gera það. Við verðum samt að halda haus, það verður að díla við þetta öðruvísi en með svona æfingum.“ Rétt eins og þau hjá RÚV hefur Vísi ekki gengið neitt að ná í Jón Óttar til að spyrja hann út í þessi skilaboð og málið almennt. Hins vegar náði Vísir stuttlega í Þóru Steinunni Pétursdóttur, eiginkonu Jóns Óttars og eiganda téðs Facebook-reiknings. Hún sagðist hafa sent Helga skilaboðin og óþarft væri að blanda Jóni Óttari í málið. Ekki væri hægt að túlka skilaboðin sem hótun, hún óski þess frá sínum dýpstu hjartarótum að Helgi sofi vært allar nætur. En Helgi megi túlka þetta eins og hann vill. Þá sagði Þóra að blaðamanni væri ekki heimilt að hafa neitt eftir sér og sleit samtalinu.
Gögnum stolið frá héraðssaksóknara Lögreglumál Fjölmiðlar Lögreglan Samherjaskjölin Tengdar fréttir Kæran setti lífið úr skorðum Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður hjá sérstökum saksóknara, segir að viðhorf sín til rannsókna efnahagsbrotamála séu gerbreytt eftir að hann sjálfur þurfti að svara fyrir kæru frá embættinu vegna brota á trúnaði í starfi. 13. september 2014 09:00 Málið áfall fyrir embættið Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari og fyrrverandi sérstakur saksóknari, segir að njósnamálið sem Kveikur fjallaði um í gærkvöldi sé áfall fyrir saksóknaraembættið. Það sem lýst sé í þættinum gangi gegn öllum gildum og siðferði innan lögreglunnar. 30. apríl 2025 06:41 Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Pálmi Gestsson leikari segir að oft hafi Spaugstofumenn klæjað í lófana að komast í hin og þessi málin en sjaldan sem nú. 30. apríl 2025 16:18 Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira
Kæran setti lífið úr skorðum Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður hjá sérstökum saksóknara, segir að viðhorf sín til rannsókna efnahagsbrotamála séu gerbreytt eftir að hann sjálfur þurfti að svara fyrir kæru frá embættinu vegna brota á trúnaði í starfi. 13. september 2014 09:00
Málið áfall fyrir embættið Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari og fyrrverandi sérstakur saksóknari, segir að njósnamálið sem Kveikur fjallaði um í gærkvöldi sé áfall fyrir saksóknaraembættið. Það sem lýst sé í þættinum gangi gegn öllum gildum og siðferði innan lögreglunnar. 30. apríl 2025 06:41
Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Pálmi Gestsson leikari segir að oft hafi Spaugstofumenn klæjað í lófana að komast í hin og þessi málin en sjaldan sem nú. 30. apríl 2025 16:18