Hiti gæti farið í sextán stig norðantil Atli Ísleifsson skrifar 8. apríl 2025 07:14 Áfram verður hlýtt fyrir norðan. Vísir/Viktor Freyr Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustlægri átt í dag, víða golu eða kalda.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði yfirleitt bjartviðri austanlands, en skýjað og dálítil súld af og til um landið sunnan- og vestanvert. „Áfram fremur hlýtt fyrir norðan og getur hiti þar farið í 16 stig þegar best lætur, en hiti annars staðar víða á bilinu 6 til 13 stig að deginum. Á morgun nálgast skil frá lægð suður í hafi landið. Þá gengur í sunnan strekking eða allhvassan vind og fer að rigna, fyrst vestanlands. Annað kvöld dregur úr vindi og vætu suðvestantil. Hiti breytist lítið,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Sunnan 8-15 m/s, hvassast vestantil, og rigning með köflum, en lengst af þurrt eystra. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast norðaustanlands. Á fimmtudag: Sunnan 3-8 og víða dálitlar skúrir, en sunnan 8-13 og rigning sunnan- og vestanlands seinnipartinn. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast fyrir austan. Á föstudag: Suðvestan 8-15 og slydduél eða él, en bjartviðri á Austurlandi. Kólnar í veðri. Á laugardag: Austlæg eða breytileg átt, 3-8 og víða dálítil él af og til. Hiti 0 til 5 stig að deginum. Á sunnudag (pálmasunnudagur) og mánudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt, skýjað og stöku él fyrir norðan, frost 1 til 5 stig. Bjart með köflum vestanlands, en líkur á snjókomu syðst og hiti um eða yfir frostmarki.
Veður Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Sjá meira