Að rjúfa vopnahlé – 300 myrt á svipstundu Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir og Yousef Tamimi skrifa 18. mars 2025 11:01 Í nótt ákvað Ísrael að herða sókn sína og endanlega gera út um friðarsamkomulagið sem var í gildi frá 19.janúar síðastliðinn. Ísraelsmenn myrtu í nótt yfir 330 einstaklinga (sem er eins og íbúarfjöldinn á Flúðum) með sprengjuárásum, flest látinna eru konur og börn en árásunum var beint á íbúðarhús, skóla og opinberar byggingar sem höfðu verið breytt í flóttamannabúðir. Eftir tvo mánuði af „friði“ hefur Ísrael því ákveðið að hefja aftur sína stórsókn á Gaza. Ástæðan fyrir því að við skrifum „friði“ innan gæsalappa er að þrátt fyrir að vopnahléð hafi verið í gildi í tvo mánuði hefur Ísrael samt náð drepa að minnsta kosti 150 Palestínumenn á Gaza á „friðartímanum“. Vopnahléð sem samið var, sem varla var hægt að kalla vopnahlé vegna sífelldra brota Ísraela á samningnum, átti að fela í sér að Ísrael drægi sig að hluta til baka frá Gaza en þess í stað hafa þeir lagt áherslu á að eyðileggja, sprengja og myrða Palestínumenn á Vesturbakkanum á „friðartímanum“. Þar hafa yfir 90 Palestínumenn hafa verið myrtir, þar af minnst 18 börn, og yfir 40 þúsund eru á flótta á Vesturbakkanum. Sem þýðir að á „friðartímanum“ hefur Ísrael myrt yfir 240 palestínumenn. Blóðugar árásir næturinnar á Gaza koma svo í kjölfar þess að Ísrael hefur markvisst verið að svelta börn og fullorðna á svæðinu auk þess að loka á rafmagn og á allan innflutning á neyðaraðstoð, vatn, lyf og aðrar nauðsynjavörur. Staðan á Gaza er alvarlegri en við getum ímyndað okkur og nú sprengir Ísrael sveltandi börn sem hírast í tjöldum því heimili þeirra voru lögð í rúst. Þvingaðir brottflutningar, áform um þjóðernishreinsanir, þjóðarmorð og landtöku á Gaza eru rædd fyrir opnum dyrum í Ísrael og af Bandaríkjaforseta. Yfirlýst markmið Ísraels er að útrýma Palestínu. Árásirnar eru gerðar með fullum stuðning Bandaríkjanna, enda voru þau fljót að kenna Hamas um að brjóta vopnahléð. Hinsvegar þegar litið er á tímalínuna þá stenst það enga skoðun. Ísrael undirritaði vopnahlésamning í janúar sem fól í sér þrjú stig og á sama tíma og Hamas hefur staðið við vopnahléið þá hefur Ísrael neitað að fylgja því, haldið áfram að myrða Palestínumenn, svelta og algjörlega hafna því að standa við skilmála vopnahlésins sem að felur í sér yfirfærslu á stig tvö og síðar meir á stig þrjú. Ísrael með stuðning Bandaríkjana ætla ekki að virða rétt Palestínumann til lífs og mannréttinda. Ísrael með stuðning Bandaríkjana ætla að útrýma Palestínu og tryggja yfirráð og sín réttindi á svæðinu. Stríðsglæpirnir halda áfram án aðgerða alþjóðasamfélagsins og alþjóðalagakerfið molnar á meðan. Ísrael hefur hunsað allar ályktanir SÞ, alla bráðabirgðaúrskurði alþjóðadómstólsins og öll áköll alþjóðasamfélagsins. Í vikunni gaf Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna út skýrslu sem sýnir að Ísrael notar kynbundið ofbeldi og kynferðisofbeldi af ásetningi til að kúga palestínsku þjóðina, og kemst skýrslan að þeirri niðurstöðu að Ísrael hafi gerist sekt um stríðsglæpi, glæpi gegn mannkyni og þjóðarmorð. Ísland á sæti í Mannréttindaráði SÞ og ber skylda til að fylgja niðurstöðum skýrslunnar eftir með aðgerðum. Það er með ólíkindum að horfa á alþjóðasamfélagið jafnt lamað og það er. Þrátt fyrir handtökubeiðni á Netanyahu, skýrslur Sameinuðu Þjóðanna og opinberar yfirlýsingar Bandaríkjana og Ísrael um að þjóðernishreinsa Palestínu, þá gerist ekkert! Ísrael er í gjöreyðingarherferð og það eina sem getur stöðvað það eru skýrar aðgerðir alþjóðasamfélagsins. Orðin ein munu ekki stöðva þjóðarmorðið. Að lokum má því spyrja, ætla Þorgerður Katrín og Kristrún Frostadóttir að standa aðgerðalausar hjá meðan Ísrael myrðir saklausa palestínska borgara á hrottalegan hátt, eða ætla þær loksins að standa með mannréttindum og berjast fyrir því að Ísrael verður látið taka ábyrgð á þeim grimmdarverkum sem framkvæmd eru daglega? Ætlar ríkisstjórn Íslands loksins að taka málið alvarlega, eins og meirihluti þjóðarinnar vill og kaus hana meðal annars til? Ætlar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra loks að eiga frumkvæði að samtali við Norðurlöndin um viðskiptaþvinganir á Ísrael, eins og hún sjálf átti hugmynd að áður en hún varð forsætisráðherra? Eða ætlar hún að vera þekkt sem forsætisráðherrann sem sat hjá á meðan börn voru sprengd í tætlur? Salvör er sviðshöfundur og Yousef er hjúkrunarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Yousef Ingi Tamimi Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar