Tvíburarnir áttu Arnars og Bjarka stund með unglingaliði Man. Utd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. mars 2025 11:01 Tvíburarnir Jack og Tyler Fletcher fagna hér titli með átján ára liði Manchester United en nú eru þeir farnir að láta til sin taka með 21 árs liðinu þrátt fyrir að vera bara átján ára. Getty/Ash Donelon Tvíburar í unglingaliði Manchester United eru að vekja mikla athygli og ekki bara vegna þess hver faðir þeirra er.
Jack Fletcher skoraði tvívegis fyrir 21 árs lið Manchester United í sigri á West Brom á föstudaginn en það var tvíburabróðir hans Tyler sem gaf stoðsendinguna í báðum mörkunum. United vann leikinn 5-1. Það má segja að þeir hafi átt þarna Arnars og Bjarka stund en Bjarki Gunnlaugsson náði því sem dæmi að leggja upp þrjú mörk fyrir bróður sinn Arnar Gunnlaugsson í sigri ÍA á ÍBV í efstu deild karla á Íslandi sumarið 1992. Þeir lögðu einnig upp fjölda marka fyrir hvorn annan í yngri flokkum. Þessi tvíburar ná líka einstaklega vel saman inn á vellinum og eru farnir að banka á dyrnar hjá aðalliði United. Stuðningsmenn United og fleiri þekkja vel faðir þeirra Jacks og Tylers sem var Manchester United goðsögnin Darren Fletcher. Fletcher varð fimm sinnum Englandsmeistari með Manchester United undir stjórn Sir Alex Ferguson en hann skoraði 24 mörk í 342 leikjum fyrir félagið frá 2003 til 2015. Fletcher eignaðist tvíburastrákana 19. mars 2007 og það eru til myndir af honum fagna Englandsmeistaratitlinum með þá í fanginu. Jack og Tyler byrjuðu reyndar í akademíu Manchester City en færðu sig yfir til Manchester United í júlí 2023. Þrátt fyrir að vera tvíburabræður þá hafa þeir mæst í landsleik, Jack með enska sextán ára landsliðinu en Tyler með skoska sextán ára landsliðinu. View this post on Instagram A post shared by Rising Ballers (@risingballers)
Enski boltinn Mest lesið María hjálpaði Arnari mikið: „Þá næ ég kannski aðeins að toga hann til baka“ Fótbolti Vilja henda Rüdiger úr landsliðinu eftir æðiskastið Fótbolti Sviptir hulunni af dularfullu dollunni Fótbolti Vilja úrslitaleik snemma vegna Eurovision Enski boltinn Sjáðu markaveislu KR og rothögg KA gegn FH Íslenski boltinn Loksins, loksins unnu skáldin kvalara sína! Lífið Brómansinn í hæstu hæðum: Lét fólkið syngja til heiðurs Klopp Enski boltinn Lið Hákonar hefur grætt mest á leikmannasölum í allri Evrópu Fótbolti Lakers sprungu og eiga bara eina líflínu Körfubolti Fá loks að halda sigrinum sem þrjú lið mótmæltu Fótbolti Fleiri fréttir Vilja úrslitaleik snemma vegna Eurovision Brómansinn í hæstu hæðum: Lét fólkið syngja til heiðurs Klopp Willum skoraði og lagði upp í stórsigri Birmingham City City í úrslit þriðja árið í röð Englandsmeistaratitillinn tryggður með stæl Höjlund bjargaði United i blálokin á móti tíu mönnum Bournemouth Fjögur lið gætu staðið heiðursvörð fyrir Liverpool Tímabilið gæti verið búið hjá Marcus Rashford Jón Daði skoraði og Victor vann Íslendingaslaginn Newcastle felldi Ipswich og komst upp í þriðja sætið Chelsea upp í fjórða sætið Evra vill berjast við Suárez í búrinu: Hann má meira að segja bíta mig „Vilja allir spila fyrir Man United“ Kidd kominn í eigendahóp Everton Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Sjá meira