Lægðagangur og umhleypingar næstu daga Atli Ísleifsson skrifar 28. febrúar 2025 07:09 Spáð er suðvestlægari átt og má reikna með skúrum eða slydduéljum eftir hádegi. Vísir/Vilhelm Víðáttumikil lægð á Grænlandshafi stýrir veðrinu í dag og má reikna með sunnan hvassviðri eða stormi og rigningu sunnan- og vestantil. Úrkomulítið verður þó á Norðausturlandi.
Á vef Veðurstofunnar segir að búast megi við mildu veðri þar sem hiti verður á bilinu tvö til tíu stig. Spáð er vægu frosti og éljum í kvöld. „Suðvestlægari og skúrir eða slydduél eftir hádegi. Þá dregur heldur úr vindi og kólnar smám saman, víða él og vægt frost í kvöld. Áfram suðvestlæg átt og él eða slydduél á morgun. Vaxandi sunnanátt seint á morgun með rigningu og hlýnandi veðri. Næstu daga er útlit fyrir lægðagang og umhleypingasamt veður,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðvestan 13-20 m/s og él eða slydduél, en úrkomulítið á Austurlandi. Dregur úr vindi og fer að rigna sunnan- og vestanlands síðdegis, hiti 0 til 5 stig. Vaxandi sunnanátt, bætir í úrkomu um kvöldið og hlýnar. Á sunnudag: Suðvestan 15-20 og él eða slydduél, en bjart með köflum um landið norðaustanvert. Kólnar í veðri. Á mánudag: Minnkandi vestan- og suðvestanátt og allvíða él, 5-13 síðdegis. Hiti í kringum frostmark. Vaxandi suðaustanátt um kvöldið með rigningu eða slyddu sunnan- og vestantil. Á þriðjudag: Suðaustan 10-18, talsverð rigning eða slydda og hlýnar um tíma, en úrkomuminna norðaustantil. Suðvestan 10-15 síðdegis og styttir víða upp, en dálítil él sunnan- og vestanlands. Víða vægt frost um kvöldið. Á miðvikudag: Fremur hæg suðlæg átt og dálítil él vestanlands, frost 0 til 5 stig. Gengur í ákveðna suðaustanátt með rigningu eða slyddu síðdegis og hlýnar. Á fimmtudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt og víða dálítil él, en úrkomulítið síðdegis. Kólnar í veðri.
Veður Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Fleiri fréttir Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Bjart og fallegt verkalýðsdagsveður Suðvestanátt með skúrum og slydduéljum Skúrir og slydduél en léttskýjað á Norður- og Austurlandi Súld eða rigning og milt veður Allhvöss sunnanátt með rigningu Enn má búast við slyddu eða snjókomu Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Smávegis væta norðantil en bjart sunnantil Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Sjá meira