„Stjórnmálamenn í Lazy Boy bíði þess að skattgreiðendur sendi þeim peninga“ Jakob Bjarnar skrifar 24. febrúar 2025 16:20 Guðrún Hafsteinsdóttir og Áslaug Arna mættust í fyrsta sinn í kappræðum í aðdraganda formannsslagsins í Pallborðinu á Vísi. Vísir/vilhelm Hvorki Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir né Guðrún Hafsteinsdóttir munu bjóða sig fram til varaformanns komi til þess að þær nái ekki því markmiði að verða formenn Sjálfstæðisflokksins.
Þetta kom meðal annars fram í ljómandi fjörugu Pallborði sem Vésteinn Örn Pétursson fréttamaður stýrði en þar var þeim tveimur teflt saman. Þær hafa farið um landið þvert og endilangt og heyrt ofan í flokksmenn og haldið framboðsfundi að undanförnu. Fyrir dyrum stendur Landsfundur Sjálfstæðisflokksins, hann verður haldinn um komandi helgi en Bjarni Benediktsson formaður flokksins hefur lýst því yfir að hann sækist ekki eftir endurkjöri. Í pallborðinu varð þeim báðum tíðrætt um að það þyrfti að endurstilla vélar flokksins, endurstilla Valhöll og ná til fleiri kjósenda en kusu flokkinn í síðustu alþingiskosningum. Þar er hann í sögulegu lágmarki með 19,4 prósenta fylgi og 14 þingmenn. Hvar eru kjósendur? Áslaug Arna sagði að hún teldi að fólk ætti að vera stolt að tala fyrir stefnu Sjálfstæðisflokksins og Guðrún sagði forgangsverkefni nýs formanns að endurheimta borgina í sveitarstjórnarkosningum sem verða að rúmum fjórtán mánuðum liðnum. Áslaug Arna sagði að þær væru nú í stjórnarandstöðu, sem væri vissulega ekki nokkuð sem Sjálfstæðisflokkurinn ætti að venjast en það væri kærkomið tækifæri til að herða á skrúfum. Guðrún sagði Íslandi alltaf farnast best ef Sjálfstæðisflokkurinn væri við völd. Áslaug Arna sagði það koma sér vel, það væri styrkur, að þekkja flokkinn inn að beini.vísir/vilhelm Hún sagðist ekki reynd í pólitík, hún hafi aðeins verið þrjú ár á þingi en hún þekkti vel til í atvinnulífinu og henni hafi verið raun af því að sitja í málþófi, 63 þingmenn og tvö hundruð manns í vel launuðum störfum og ekkert kæmi af færibandinu. Áslaug Arna viðurkenndi fúslega að hún væri óreynd með að starfa fyrir aðra en flokkinn og hið opinbera en hún liti á það sem styrk að þekkja flokkinn inn að beini. Báðar töldu þær báknið orðið of stórt, það skyti skökku við að opinberir starfsmenn væru í mörgum tilfellum komnir á hærri laun en gerist á almennum markaði, með miklu betri réttindi á meðan aldurspíramídinn væri að snúast á haus; færri og færri sem vinna við að halda á floti ellilífeyrisþegum. Styrkjamálið snúið fyrir Sjálfstæðisflokkinn Vésteinn Örn vék að styrkjamálinu svokallaða en Guðrún hefur sagt að hún teldi að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að endurgreiða hluta styrkjanna. Guðrún segist hafa fengið þessa spurningu áður og það hafi komið upp í lokin á viðtali sem hún var í hjá Stefáni Einari Stefánssyni í Spursmálum Morgunblaðsins. „Um þetta vil ég bara segja eitt. Ef það er svoleiðis að Sjálfstæðisflokkurinn hefur fengið meira greitt en hann á rétt á þá að sjálfsögðu endurgreiðir hann það. Mér finnst ekki að það eigi að þurfa að hafa fleiri orð um það.“ Guðrún sagði það að sjálfsögðu eiga að vera svo að ef Sjálfstæðisflokkurinn ætti ekki rétt á að fá styrki, þá ætti flokkurinn að endurgreiða þá.vísir/vilhelm Guðrún sagði Vilhjálm Árnason ritara Sjálfstæðisflokksins hafa hafið frumkvæðisathugun á þessu máli í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og hún hlakkaði til að sjá hvað kæmi út úr því. Vésteinn Örn sagði Vilhjálm hafa lýst því yfir, í hádegisfréttum fréttastofunnar, að hann sé ósammála því sem Guðrún hefur fram að færa í þessum efnum en Guðrún segir það koma sér spánskt fyrir sjónir. „Við viljum að þjóðin geti treyst því að þetta fyrirkomulag sé rétt og þeir flokkar sem fái féð fái það vegna þess að það eigi rétt á því.“ Mikilvægt að taka ekki undir rangan málflutning Áslaug Arna sagði þau í þingflokknum hafi setið yfir þessu máli nokkra fundi og rætt það hver staða Sjálfstæðisflokksins er. „Við komumst að þeirri niðurstöðu með lögfræðingum að við, ásamt þeim stjórnmálaflokkum sem skráðu sig 2022, hafi átt rétt á þessu fjármagni.“ Frumkvæðisathugun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar snúi að þeim flokkum sem ekki hafa skráð sig ár eftir ár eins og Flokkur fólksins er dæmi um. „En það er mikilvægt að við tökum ekki undir rangan málflutning eða rógburð andstæðinga okkar eins og fjármálaráðherra er dæmi um. Hann reynir ítrekað að verja Flokk fólksins og spyrða við Sjálfstæðisflokkinn.“ Áslaug Arna segir mikilvægt að umræða um styrki til stjórnmálaflokkana væri vöknuð því þar væri pottur brotinn.vísir/vilhelm Áslaug Arna segir mikilvægt að halda þessu fram því andstæðingar Sjálfstæðisflokksins vilji skilgreina hann. „En loksins er komin umræða um framlög til stjórnmálaflokka, og við Guðrún erum sammála um það.“ Sósíalistar á tvöföldum styrkjum Guðrún sagði það aðra umræðu en hún væri hjartanlega sammála Áslaugu Örnu. „Þetta er ekki gott fyrirkomulag. Frá því þetta var tekið upp, 2010, hafa verið greiddir út 10,4 milljarðar til stjórnmálaflokka, jafnvel stjórnmálaflokka sem hafa ekki komið einni manneskju á þing. Sósíalistaflokka sem nú eru að reka sjónvarpsstöð og fá örugglega viðbótarstyrki frá ríkinu í gegnum Fjölmiðlastyrki.“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðrún Hafsteinsdóttir bjóða sig báðar fram til formanns Sjálfstæðisflokksins, Vésteinn Örn Pétursson fréttamaður stjórnaði umræðum í Pallborðinu og voru þær umræður afsakaplega fjögugar.vísir/vilhelm Vésteinn Örn benti á að þarna væri Guðrún augljóslega að tala um Sósíalistaflokkinn sem hefur haldið úti sjónvarpsstöðinni Samstöðinni. „Ég er að tala um 10,5 milljarða. Það kostar rúma átta milljarða að reka Landhelgisgæsluna á einu ári og okkur vantar fé til þess.“ Guðrún sagði þetta fyrirkomulag fráleitt, líkt og það sem stjórnmálaflokkarnir búi við. „Nú lítur þetta út fyrir almenningi sem svo að þeir sitji bara í Lazy boy og bíði eftir því að skattgreiðendur sendi þeim peninga. Þetta getur ekki átt að vera svona.“
Pallborðið Sjálfstæðisflokkurinn Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 2025 Styrkir til stjórnmálasamtaka Mest lesið „Ég vildi óska að fólk gæti séð drenginn minn eins og hann er“ Innlent Ráðamenn hneykslast á Exit-auglýsingu SFS Innlent Amman handleggsbrotin eftir hundsbit með barnabarnið í göngutúr Innlent Bogi les sinn síðasta fréttatíma á morgun Innlent Rukkaði konuna fyrir heimferðina eftir að hafa nauðgað henni Innlent Níu létust í árásinni í Vancouver Erlent Jón Ólafsson segir skilið við útvarpið Innlent Áætlun Trump gangi engan veginn upp Innlent Framtíðin sé járntjald frá Finnlandi niður að Svartahafi Erlent Kvenkyns ökumönnum fækkað: Áhyggjuefni ef almenningur treystir ekki leigubílstjórum Innlent Fleiri fréttir Fjölgun safngripa kallar á stækkun Flugsafnsins Hljóðheimur sumarsins í hættu: Mikil fækkun lóu og spóa Höllu dreymir um að fá gróðurhús á Bessastaði Bogi les sinn síðasta fréttatíma á morgun Hælisleitendur í einangrun: Versta úrræðið sem hægt er að beita Geðheilbrigði í fangelsum og fækkun lóu og spóa Áætlun Trump gangi engan veginn upp Vill selja bílastæðahús borgarinnar og Iðnó Ráðamenn hneykslast á Exit-auglýsingu SFS Mikill viðsnúningur hjá Árborg í fjármálum sveitarfélagsins Amman handleggsbrotin eftir hundsbit með barnabarnið í göngutúr Kvenkyns ökumönnum fækkað: Áhyggjuefni ef almenningur treystir ekki leigubílstjórum Áhyggjur leigubílstjóra og kólnandi hagkerfi Óvissa um heimshagkerfið og úrsögn Sólveigar Önnu „Ég vildi óska að fólk gæti séð drenginn minn eins og hann er“ Töldu Akureyringa ekki reka alvöruflugfélag Hefur áhyggjur af rekstri skólans undir Rafmennt Vita ekki hver áhrif fyrirætlanna Meta verða Jón Ólafsson segir skilið við útvarpið Nýtt og glæsilegt svínabú í Eyjafirði fyrir 400 gyltur Aukið eftirlit til muna eftir brot bílstjórans gegn konunni Útför páfa og afbrot leigubílstjóra Hreindýr í sjónum við Djúpavog Rukkaði konuna fyrir heimferðina eftir að hafa nauðgað henni Réðu niðurlögum sinuelds við Húsafell Bensínverð rjúki upp en fari hægt niður Vanlíðan íslenskra ungmenna mikið áhyggjuefni Hælisleitendur bíði brottvísunar við óviðunandi aðstæður Þarf lítið til svo hægt yrði að hækka hámarkshraða í 120 Bullandi hagnaður hjá Sveitarfélaginu Ölfusi Sjá meira