Sýning sem breytir upplifun okkar á heiminum Smáralind 20. febrúar 2025 10:38 Sýningin Sjónarspil stendur yfir í Smáralind til og með sunnudeginum 2. mars vilhelm „Viðbrögðin hafa verið frábær! Sýningin kallar fram undrun, hlátur og oft umræðu um hvernig við skynjum veruleikann. Krakkar og fullorðnir hafa bæði gaman af því að prófa sig áfram og uppgötva hvernig litir, form og ljós geta breytt upplifun okkar á heiminum.“ segir Þórunn Birna Úlfarsdóttir, markaðsfulltrúi hjá Smáralind um sýninguna Sjónarspil sem sett hefur verið upp í verslunarmiðstöðinni.
Vilhelm Sýningin kemur frá Þýskalandi og ferðast milli landa undir slagorðinu „Science on Tour“ í þeim tilgangi að sem flestir fái tækifæri til að prófa og kynnast heillandi fyrirbærum úr heimi vísindanna. Hún er sérstaklega hönnuð fyrir verslunarmiðstöðvar og verður eingöngu í Smáralind hér á landi. Gestir fá að upplifa hvernig heilinn og skynfærin vinna saman og stundum blekkja okkur. Á sýningunni má meðal annars finna sjónhverfingar, skynvillur og þrautir sem ögra skynjun okkar á stærð, hreyfingu og rými. Vilhelm „Við hjá Smáralind viljum skapa fjölbreytta afþreyingu fyrir gesti okkar og höfum í gegnum árin unnið með „Science on Tour“ til að koma með spennandi og grípandi vísindasýningar til landsins. Þetta er í tíunda skiptið sem Smáralind fær sýningu af þessu tagi, en þær eru alltaf nýjar og hver með sínu sniði. Við teljum að áhugi barna og ungmenna á vísindum geti aukist til muna með því að leyfa þeim að sjá vísindi í lifandi samhengi og upplifa þau á eigin skinni. Þessi sýning er dæmi um hvernig vísindi geta verið spennandi, skemmtileg og oft á tíðum ótrúleg. Þessi sýning dregur fram hversu ótrúlegur heilinn okkar er og hvernig hann túlkar mismunandi skynáreiti – oft á óvæntan hátt,“ segir Þórunn og tekur fram að sýningin sé frábært stopp fyrir alla fjölskylduna í vetrarfríí. Vilhelm „Sýningin er skemmtileg fyrir alla aldurshópa en hentar sérstaklega fyrir börn frá 5 ára og upp úr. Það skemmtilega er þó að hún höfðar líka til eldri krakka og fullorðinna sem hafa gaman af vísindum, þrautum og sjónhverfingum. Sýningin stendur yfir til og með sunnudagsins 2. mars sem þýðir að hún smellpassar í vetrarfrí grunnskólanna, sem gerir hana að tilvalinni afþreyingu fyrir fjölskyldur sem vilja nýta fríið í eitthvað spennandi og öðruvísi,“ segir Þórunn. Vilhelm Auðvelt er að flétta heimsókn á sýninguna við aðra afþreyingu í Smáralind. En þar er meðal annars að finna fjölda verslana, veitingastaða, bíó, Fótboltaland. Það er því auðvelt að gera sér góðan dag úr heimsókn í Smáralind í vetrarfríinu með vísindum, leik og ljúffengum veitingum í bland. Sýningin Sjónarspil stendur yfir til og með sunnudeginum 2. mars og er staðsett á tveimur stöðum á 1. hæð Smáralindar, aðgengileg og opin öllum. Upplýsingaskilti um sýninguna eru bæði á íslensku og ensku. Vilhelm Vilhelm vilhelm Vilhelm
Vísindi Smáralind Krakkar Mest lesið Kíkti í kaffi til kanslarans Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Lífið „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Lífið Madison Beer trúlofast NFL-kappa Lífið Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Lífið Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Lífið Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Tónlist Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Bylgjulestin kvaddi sumarið á Flúðum Súrdeigsbrauðdrottningin breytti pítsadeigi í þriggja rétta grillveislu Ekki ofpeppast í áfenginu, plastpoka á táslurnar og forðast tjörnina Optical Studio með vinsælan Pop Up markað með allt að 70% afslætti Bylgjulestin brunar á Flúðir Í festival gír með Icewear Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ Myndaveisla: Götubitinn í Hljómskálagarðinum Stefnir með sjö fjölskyldum aftur á Unglingalandsmótið Uppskriftir: Axel bauð í þriggja rétta grillveislu Vissir þú að JYSK selur bleikan útilegustól? Bylgjan í beinni frá Götubitahátíðinni Myndir frá Selfossi þar sem Bylgjulestin var í beinni Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Hitavörn, blástursvörn eða UV-vörn? Hvað þarf hárið þitt í raun og veru? Mikil gleði á glæsilegri frumsýningu Disney Vaiana í Sambíóunum Egilshöll Glæsilegir vinningar í boði í Sumarleik Kjarnafæðis Bylgjulestin brunar á Kótelettuna Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Nýtir íslenska skessujurt með grillmatnum Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Bylgjulestin fer norður á morgun Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Hlaupaslagur ársins í beinu StuðStreymi frá Dyrfjöllum Ný bókunarvél hjá Úrval Útsýn og fjöldi spennandi ferðamöguleika Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Myndaveisla: Fjör í Hafnarfirði um helgina Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag Orion tannlæknastofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í miðbæ Búdapest Bylgjulestin mætir á Hjarta Hafnarfjarðar á laugardag Sjá meira