„Ég viðurkenni að það var algjör þvæla hjá þér“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. janúar 2025 16:31 Leifur Steinn Árnason og Mate Dalmay tókust á í Lögmáli leiksins. stöð 2 sport Leifur Steinn Árnason og Mate Dalmay verða seint sakaðir um að vera sammála um margt. Það kom enn og aftur í ljós í Lögmáli leiksins sem verður á dagskrá Stöðvar 2 Sports 2 í kvöld.
Þeir Leifur, Mate og Tómas Steindórsson fengu það hlutverk að velja lið fyrir Stjörnuleikinn. Hitna fór í kolunum þegar þeir ræddu um stjörnuliðin í Vesturdeildinni og sérstaklega þegar talið barst að Los Angeles Lakers. Leifur valdi Anthony Davis í sitt lið en Mate LeBron James. Svo hófu þeir að karpa. „LeBron er ekki besti leikmaðurinn í Lakers. AD er betri í vetur en LeBron. Ég horfi á leiki, ég skoða tölfræðina og svo eru þetta einn plús einn hjá mér. Ég veit ekki alveg hvernig þetta virkar hjá þér, Mate,“ sagði Leifur en Mate trúði því að hann vildi frekar að Davis yrði aðalkallinn hjá Lakers í einvígi í úrslitakeppninni en LeBron. „Þú myndir aldrei gera þetta. Þú myndir aldrei velja Anthony Davis fram yfir LeBron James,“ sagði Mate en fyrir tveimur vikum tókust þeir Leifur á um það hvort LeBron væri búinn og ætti að huga að því að henda skónum upp í hilluna. „Ég viðurkenni að það var algjör þvæla hjá þér. LeBron er einn besti leikmaður í heiminum,“ sagði Leifur áður en Mate skaut inn í. „Þér finnst hann ekki einu sinni bestur í eigin liði. Eru þeir ekki í 7. sæti?“ sagði Mate. „Ég trúi því að Lakers geti orðið meistari í vor,“ sagði Leifur. Klippa: Lögmál leiksins - Deildu um stjörnulið og Lakers „Þú ert búinn að segja þetta um öll liðin sem við höfum rætt!“ endaði Mate svo á að segja. Innslagið úr Lögmáli leiksins má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Þáttur kvöldsins hefst klukkan 20:00 á Stöð 2 Sport 2.
NBA Lögmál leiksins Mest lesið „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Fótbolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Fótbolti „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ Sport Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Fótbolti Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Sjá meira