Ný mynd um Jackson í uppnámi vegna sáttar frá 1994 Magnús Jochum Pálsson skrifar 27. janúar 2025 00:20 Michael Jackson tróð upp á Ofurskálinni í janúar 1993 en nokkrum mánuðum síðar var hann sakaður um kynferðislega áreitni. Getty Ný mynd um Michael Jackson er skyndilega í lausu lofti, rétt eftir að tökur kláruðust, vegna klásúlu í sátt popparans við fjölskyldu tánings sem sakaði popparann um áreitni árið 1993. Málið átti að vera lykilatriði í myndinni en umfjöllun um það brýtur í bága við samning Jackson og fjölskyldunnar.
Tónlistardramanu Michael er leikstýrt af Antoine Fuqua, sem gerði Training Day (2001), með handriti eftir John Logan, sem skrifaði Gladiator (2000). Jaafar Jackson, bróðursonur Michaels, leikur konung poppsins en með önnur hlutverk fara Colman Domingo, Nia Long, Miles Teller og Laura Harrier. Myndin átti að koma í bíó vestanhafs þann 3. október en þau plön eru nú í uppnámi. Ástæðan er að myndin átti að hverfast að miklu leyti um sátt Jackson utan dómstóla við fjölskyldu hins þrettán ára Jordan Chandler sem sakaði popparann um kynferðislega áreitni árið 1993. Myndir frá blaðamannafundi Jackson-fjölskyldunnar þar sem hún lýsti yfir stuðningi við popparann.Getty Ásakanir Chandler leiddu til glæparannsóknar lögreglunnar í Los Angeles og á endanum kærði fjölskyldan popparann. Frekar en að fara með málið fyrir dómara sættust báðir aðilar á að leysa málið utan dómstóla í janúar 1994. Jackson neitaði ásökunum Chandler alla tíð og fór fyrir dóm í sambærilegu kynferðisbrotamáli árið 2005 en var ekki fundinn sekur í því. La Toya Jackson með frænda sínum Jaafar Jackson árið 2019. Jaafar leikur frænda sinn í nýrri mynd um konung poppsins.GEtty Saga Jackson endurskrifuð John Branca og John McClain, skiptaráðendur í búi popparans, eru víst viðriðnir framleiðslu nýju kvikmyndarinnar og samkvæmt blaðamanninum Matthew Belloni, sem segist hafa séð handrit kvikmyndarinnar, er dreginn upp sú mynd af popparanum að hann hafi verið saklaus í málinu. Myndin bæði hefst og endar á rannsókn málsins frá 1993 og rammar þannig inn sögu Jackson. Belloni vill meina að myndin sýni Jackson „sem barnalegt fórnarlamb hinnar fégráðugu Chandler-fjölskyldu.“ Stór hluti myndarinnar og fjöldi lykilatriða, sem búið er að taka upp, eru nú ónothæf vegna þess að í samningi Jackson við fjölskylduna stóð að ekki mætti nota málið í nokkurs konar aðlögun á lífi popparans, hvort sem það væri í leikriti eða kvikmynd. Allur þriðji þáttur kvikmyndarinnar þegar hún á að ná hámarki sínu er því ónothæfur með öllu. Myndin hefur nú þegar kostað 150 milljónir Bandaríkjadala og væntanlega þarf að skrifa stóran hluta handritsins upp á nýtt, kalla leikara aftur í tökur og skjóta ný atriði til að klára myndina. Það gæti verið gríðarlega kostnaðarsamt.
Hollywood Kynferðisofbeldi Bíó og sjónvarp Bandaríkin Tónlist Tengdar fréttir Lýsa grófum kynferðisbrotum Jackson í smáatriðum í nýrri heimildarmynd Fyrri hluti nýrrar heimildarmyndar um meint kynferðisbrot tónlistarmannsins Michael Jackson var sýndur á sjónvarpsstöðinni HBO í gærkvöldi en síðari hlutinn verður sýndur í kvöld. 4. mars 2019 14:00 Óhugnanlegar lýsingar á meintum kynferðisbrotum Jacksons í nýrri heimildarmynd Í Leaving Neverland er rætt við þá Wade Robson og James Safechuck sem halda því báðir fram að Jackson hafi misnotað þá þegar þeir voru börn. 26. janúar 2019 11:57 Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Pattra með pæju-padelmót Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? Áskorun Fleiri fréttir Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Sjá meira
Lýsa grófum kynferðisbrotum Jackson í smáatriðum í nýrri heimildarmynd Fyrri hluti nýrrar heimildarmyndar um meint kynferðisbrot tónlistarmannsins Michael Jackson var sýndur á sjónvarpsstöðinni HBO í gærkvöldi en síðari hlutinn verður sýndur í kvöld. 4. mars 2019 14:00
Óhugnanlegar lýsingar á meintum kynferðisbrotum Jacksons í nýrri heimildarmynd Í Leaving Neverland er rætt við þá Wade Robson og James Safechuck sem halda því báðir fram að Jackson hafi misnotað þá þegar þeir voru börn. 26. janúar 2019 11:57