Áfall bætist við ógöngur Man. City Sindri Sverrisson skrifar 20. desember 2024 16:32 Ruben Dias í baráttu við Rasmus Höjlund í leiknum við Manchester United, en Pep Guardiola hefur nú greint frá því að Dias verði frá keppni í 3-4 vikur eftir að hafa meiðst í leiknum. Getty/Carl Recine Englandsmeistarar Manchester City hafa verið í tómu tjóni undanfarnar vikur og ekki bætir úr skák að lykilmaður í vörn liðsins verður frá keppni fram yfir hátíðarnar.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri City, staðfesti á blaðamannafundi í dag að portúgalski miðvörðurinn Ruben Dias yrði frá keppni næstu 3-4 vikurnar eftir að hafa meiðst í 2-1 tapinu gegn Manchester United á sunnudaginn. Dias missir því af heimsókn til Birmingham á morgun þar sem City mætir Aston Villa, og eins af leikjum við Everton, Leicester og West Ham. Mögulega gæti hann náð bikarleiknum við Salford City 11. janúar, og næsti deildarleikur eftir það er svo við Brentford 14. janúar. Dias ætti að minnsta kosti að vera klár í slaginn fyrir leikinn mikilvæga við PSG í Meistaradeild Evrópu 22. janúar. „Þetta eru meiðsli í vöðva og hann verður frá keppni í þrjár til fjórar vikur. Hann fann fyrir einhverju eftir 75 mínútur gegn United en hann er sterkur og vildi vera áfram á vellinum. Núna er hann meiddur,“ sagði Guardiola. Góðu fréttirnar fyrir City eru að John Stones, Manuel Akanji og Mateo Kovacic æfðu allir í vikunni og sagði Guardiola að þeir gætu allir komið við sögu gegn Villa á morgun. Dias hefur þegar misst af sjö leikjum vegna kálfameiðsla á þessari leiktíð og aðrir varnarmenn; Stones, Akanji, Kyle Walker og Nathan Ake, hafa allir misst af leikjum vegna meiðsla. Þá verður miðjumaðurinn Rodri ekki meira með liðinu á þessari leiktíð. Gengi City hefur verið skelfilegt undanfarna tvo mánuði og hefur liðið aðeins unnið einn af síðustu ellefu leikjum en tapað átta þeirra. Liðið er þó enn í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 27 stig, en níu stigum á eftir toppliði Liverpool sem á leik við Everton til góða.
Enski boltinn Mest lesið Skýrsla um Brynjar Karl: Geri tilraunir með börn og skorti fræðilegan grunn Körfubolti Hnefarnir látnir tala í Umhyggjuhöllinni Körfubolti „Þetta er hreinn og klár glæpur“ Körfubolti TikTok-stjarna ÍBV dælir út efni frá Eyjum Íslenski boltinn Vilja Gylfa Þór ekki til baka: „Enginn skilaréttur“ Íslenski boltinn Gylfi valdið mestum vonbrigðum Íslenski boltinn Laugardalsvöllur tekur lit Fótbolti Þurftu að hætta keppni til að tryggja öryggi keppenda Sport Mesta rúst í sögu NBA Körfubolti Sannfærðir um að FH verði í fallbaráttu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leeds sló eigið stigamet Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu Vilja úrslitaleik snemma vegna Eurovision Brómansinn í hæstu hæðum: Lét fólkið syngja til heiðurs Klopp Willum skoraði og lagði upp í stórsigri Birmingham City City í úrslit þriðja árið í röð Englandsmeistaratitillinn tryggður með stæl Höjlund bjargaði United i blálokin á móti tíu mönnum Bournemouth Fjögur lið gætu staðið heiðursvörð fyrir Liverpool Tímabilið gæti verið búið hjá Marcus Rashford Jón Daði skoraði og Victor vann Íslendingaslaginn Newcastle felldi Ipswich og komst upp í þriðja sætið Chelsea upp í fjórða sætið Evra vill berjast við Suárez í búrinu: Hann má meira að segja bíta mig „Vilja allir spila fyrir Man United“ Kidd kominn í eigendahóp Everton Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Sjá meira