Stormur á Austfjörðum Atli Ísleifsson skrifar 13. desember 2024 07:20 Frost á landinu verður á bilinu núll til sjö stig en í kvöld nálgast skil suðvesturhornið. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir norðvestan hvassviðri á austanverðu landinu og stormi á Austfjörðum þar sem gul viðvörun tekur gildi fyrir hádegi.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að él séu á norðanverðu landinu en yfirleitt verði léttskýjað sunnan- og vestanlands. Gul viðvörun tekur gildi á Austfjörðum vegna hvassviðris eða storms klukkan 10 í dag og er í gildi til klukkan 21 í kvöld. Má reikna með vindhviður nái 35 til 40 metrum á sekúndu. Varasamar aðstæður gætu skapast fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Frost verður á bilinu núll til sjö stig en í kvöld nálgast skil suðvesturhornið og þá mun snúast í suðaustanátt og þykkna upp. Í fyrramálið verður svo suðvestan 8-15 m/s með skúrum eða éljum og hiti á bilinu 1 til 6 stig, en birtir til norðaustan- og austanlands og vægt frost þar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Sunnan og suðvestan 10-15 m/s. Slydda og síðar rigning og hiti 1 til 6 stig, en úrkomulítið og vægt frost norðanaustanlands framan af degi. Kólnar með éljum um kvöldið á vestanverðu landinu. Á sunnudag: Suðvestlæg átt, 8-15 m/s og éljagangur, en úrkomulítið austanlands. Snýst í norðan 5-13 norðantil seinnipartinn. Frost víða 0 til 5 stig, en frostlaust við suðurströndina. Á mánudag: Fremur hæg breytileg átt og víða él, en þurrt að kalla austanlands. Frost 0 til 12 stig, kaldast norðaustantil. Á þriðjudag: Suðlæg átt og snjókoma eða él, en lengst af úrkomulaust norðaustantil. Áfram kalt í veðri. Hvessir og hlýnar um kvöldið. Á miðvikudag: Ákveðin norðlæg eða breytileg átt með ringingu eða slyddu, en snjókomu vestan- og norðvestanlands. Á fimmtudag: Útlit fyrir norðanátt með snjókomu, en að mestu þurrt sunnan heiða.
Veður Mest lesið Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Íranir enn vígreifir Erlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Innlent „Höfum ekki unnið nóg“ Erlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Fleiri fréttir Færð geti víða spillst hratt Él og slydduél í dag og önnur lægð á morgun Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Kröpp lægð yfir landinu og úrkoman blönduð Gular veðurviðvaranir í kortunum Köldu lofti beint til landsins Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Ört dýpkandi lægð á leiðinni og appelsínugular viðvaranir Appelsínugul viðvörun á morgun Vara við stórhríð á Austurlandi Snjókoma víða en bjart sunnan heiða Væta sunnantil og töluverð hláka í höfuðborginni Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu vegna snjókomu Snjókoma á höfuðborgarsvæði í dag og á morgun Úrkomusvæði með snjókomu fer yfir vesturhelming landsins Gular veðurviðvaranir á Austurlandi Snýst í norðanátt og snarpar hviður austantil Útlit fyrir lægðagang og umhleypinga Hvöss austanátt fylgir alldjúpri lægð í dag Gul veðurviðvörun á Suðausturlandi Hitinn að skríða yfir frostmark sunnan heiða Herðir á frosti í kvöld Él og snjókoma norðan- og austantil Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi Draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga Vara við snörpum vindhviðum Sjá meira