Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. nóvember 2024 21:03 Birgir Steinn Jónsson var mjög öflugur í liði Aftureldingar í kvöld. Vísir/Anton Brink Afturelding náði FH á stigum á toppi Olís deildar karla í handbolta en þurfti að hafa mikið fyrir sigri sínum á móti Fjölni. Stjarnan vann öruggan sigur á ÍR á sama tíma.
FH náði tveggja stiga forskot á Aftureldingu fyrr í kvöld en Mosfellingar náðu þeim aftur með sex marka sigri á Fjölni, 30-24. Fjölnismenn stóðu mjög lengi í gestunum en Afturelding átti góðan endasprett og tryggði sér góðan útisigur. Staðan var 24-23 fyrir Aftureldingu fimm mínútum fyrir leikslok en Mosfellingar unnu lokamínúturnar 6-1. Birgir Steinn Jónsson fór fyrir liði Aftureldingar með tíu mörkum og fjórum stoðsendingum. Ihor Kopyshynskyi skoraði sex mörk. Haraldur Björn Hjörleifsson var markahæstur hjá Fjölni með sjö mörk. Stjarnan vann átta marka sigur á ÍR, 39-31, eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik, 18-17. ÍR-ingar gerðu vel framan af leik en áttu fá svör í seinni hálfleiknum. Starri Friðriksson og Adam Thorstensen vori menn kvöldsins. Starri skoraði tíu mörk fyrir Stjörnuliðið þar af sex þeirra úr hraðaupphlaupum. Adam varð sautján skot í marki Stjörnunnar og átti þrjár stoðsendingar fram í hraðaupphlaup. Hans Jörgen Ólafsson og Tandri Már Konráðsson skoruðu báðir fimm mörk fyrir Stjörnuna. Baldur Fritz Bjarnason. markahæsti leikmaður deildarinnar, var með tíu mörk og sex stoðsendingar fyrir ÍR í kvöld. Bernard Kristján Darkoh skoraði sjö mörk.
Olís-deild karla Stjarnan ÍR Afturelding Fjölnir Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Bruno settur á bekkinn Enski boltinn Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Íslenski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Fleiri fréttir Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Sjá meira